Íþróttahátíð Kópavogs 2014 - Dagskrá og skipulag
Málsnúmer: 1409643
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 44. fundur
Lögð fram tillaga að dagskrá íþróttahátíðarinnar og skipulagi hennar.
Íþróttaráð samþykkir framlagða dagskrá og skiptir með sér verkum varðandi framkvæmd hátíðarinnar.
02
Íþróttaráð - 41. fundur
Greint frá vinnufundi í sl. viku, þar sem fulltrúar úr íþróttaráði og stjórn markaðsstofu Kópavogs ásamt starfsmönnum áttu góða samræðu um framkvæmd og skipulag íþróttahátíðar Kópavogs.
Íþróttaráð samþykkir að Íþróttahátíð Kópavogs verði fimmtudaginn 8. janúar 2015 í aðstöðu hjá hestamannafélaginu Spretti. Starfsmönnum falið að senda út bréf og önnur gögn sem tengjast hátíðinni.
03
Íþróttaráð - 40. fundur
Formaður lagði til að undirbúningi, skipulagi og framkvæmd Íþróttahátíðar Kópavogs verði breytt frá því sem verið hefur. Íþróttahátíð Kópavogs verði stærri og opnari viðburður.
Starfsmönnum falið að hefja undirbúning nú þegar.