Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um raunkostnað á reikningum

Málsnúmer: 1410277

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2746. fundur

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:$line$"Í þeim tilfellum sem Kópavogsbær gefur út reikninga vegna niðurgreiddrar þjónustu við bæjarbúa, skal þar koma fram hvað þjónustan kostar í raun, hversu há upphæð er niðurgreidd af Kópavogsbæ og hversu há upphæð notandi þjónustunnar greiðir.$line$Greinargerð:$line$Það að sýna raunkostnað við þjónustu sem Kópavogsbær veitir eykur kostnaðarvitund þeirra sem þjónustunnar njóta. Ennfremur er það eðlilegt að bæjarbúar sjái hvað sú þjónusta sem þeir njóta frá Kópavogsbæ kostar í raun.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir."

Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar bæjarritara.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, færir til bókar að sundurgreining kostnaðar kemur nú þegar fram á greiðsluseðlum vegna leikskólagjalda.