Öflun upplýsinga um kostnað barnafjölskyldna.
Málsnúmer: 1410309
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2755. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 15. desember, svar við fyrirspurn í bæjarráði um hlutfall innheimtra leikskólagjalda vegna tíma umfram 8 tíma.
Lagt fram.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson þakkar fyrir veitt svör.
02
Bæjarráð - 2754. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson minnti á fyrirspurn sína um leikskólagjöld umfram 8 tíma.
03
Bæjarráð - 2751. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 18. nóvember, samanburður á gjaldskrám milli sveitarfélaga, upplýsingar sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 23. október.
Lagt fram.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Þakka svörin og óska eftir upplýsingum um hve stór hluti innheimtra leikskólagjalda er til kominn vegna tíma umfram 8 tíma (svokallaður 9. tími).$line$Ólafur Þór Gunnarsson"
04
Bæjarráð - 2747. fundur
Frá bæjarritara, tillaga frá Margréti Júlíu Rafnsdóttir, sem frestað var á síðasta fundi bæjarráðs. Tillagan er eftirfarandi:$line$"Kópavogsbær afli upplýsinga um kostnað barnafjölskyldna í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, hvað varðar daggæslu, leikskóla, dægradvöl í grunnskólum og skólamáltíðir og beri saman við kostnað barnafjölskyldna í Kópavogi.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir"
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum með þeirri viðbót að aflað verði upplýsinga um kostnað hjá Árborg og Akureyri.
05
Bæjarráð - 2746. fundur
Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Kópavogsbær afli upplýsinga um kostnað barnafjölskyldna í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, hvað varðar daggæslu, leikskóla, dægradvöl í grunnskólum og skólamáltíðir og beri saman við kostnað barnafjölskyldna í Kópavogi. $line$Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.