Glaðheimar, úthlutun lóða.
Málsnúmer: 1410366
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1258. fundur
Greint frá stöðu mála.
02
Bæjarráð - 2771. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 14. apríl, lagðar fram tillögur vinnuhóps um úthlutun byggingarréttar á Glaðheimasvæði.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögur um úthlutun byggingarréttar á Glaðheimasvæði og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar. Afgreiðslu á tillögu um úthlutun lóðanna Álalind 5 og Álalind 10 verði frestað vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumanni.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
03
Bæjarstjórn - 1108. fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs óskaði heimildar til að auglýsa lóðir undir fjölbýlishús á Glaðheimasvæðinu. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa lóðir á Glaðheimasvæði með 11 atkvæðum.
04
Bæjarráð - 2757. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. desember, óskað heimildar til að auglýsa lóðir undir fjölbýlishús á Glaðheimasvæði. Breyting á tillögu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
05
Bæjarráð - 2756. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. desember, óskað heimildar til að auglýsa lóðir undir fjölbýlishús á Glaðheimasvæði.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. $line$$line$Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.