Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Grænir dagar í Kópavogi - Skipulag svæða

Málsnúmer: 1410609

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2768. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 18. mars, lögð fram tillaga að aðgerðaráætlun á Grænum dögum 2015 frá garðyrkjustjóra dags 12.3.2015.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að fyrirkomulagi á grænum dögum 2015 og vísar kostnaðarliðum erindisins til bæjarráðs.$line$

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 63. fundur

Lögð fram tillag að aðgerðaráætlun á Grænum dögum 2015 frá garðyrkjustjóra dags 12.3.2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að fyrirkomulagi á grænum dögum 2015 og vísar kostnaðarliðum erindisins til bæjarráðs.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 57. fundur

Lögð fram drög að aðgerðaáætlun fyrir Græna daga sumarið 2015 dags 27.11.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlögð drög og áframhaldandi vinnu að skipulagi framkvæmdar Grænna daga og fyrir sumarið 2015.

04

Bæjarstjórn - 1105. fundur

Lagt fram erindi Umhverfissviðs varðandi endurupptöku á átaki "Grænir dagar" í Kópavogi og skipulagningu svæða.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela Umhverfisfulltrúa að afmarka aðgerðarsvæði "Grænna daga" í samræmi við Aðalskipulag Kópavogsbæjar 2012-2024 og samþykkt deiliskipulög þar sem þau eru til staðar og gera drög að aðgerðaráætlun í samráði við garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar. Kostnaðarliðum erindisins er vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að ráðist verði í átakið "Grænir dagar" og verði fjármagnað af framlagi á fjárhagsáætlun til umhverfismála á árinu 2015.

05

Bæjarráð - 2749. fundur

Lagt fram erindi umhverfissviðs varðandi endurupptöku á átaki "Grænir dagar" í Kópavogi og skipulagningu svæða.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfisfulltrúa að afmarka aðgerðasvæði "Grænna daga" í samræmi við Aðalskipulag Kópavogsbæjar 2012-2024 og samþykkt deiliskipulög þar sem þau eru til staðar og gera drög að aðgerðaáætlun í samráði við garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar. Kostnaðarliðum erindisins er vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 56. fundur

Lagt fram erindi Umhverfissviðs varðandi endurupptöku á átaki "Grænir dagar" í Kópavogi og skipulagningu svæða.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfisfulltrúa að afmarka aðgerðarsvæði "Grænna daga" í samræmi við Aðalskipulag Kópavogsbæjar 2012-2024 og samþykkt deiliskipulög þar sem þau eru til staðar og gera drög að aðgerðaráætlun í samráði við garðyrkjustjóra Kópavogsbæjar. Kostnaðarliðum erindisins er vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.