Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1105. Fundur haldinn 11. nóvember 2014.

Málsnúmer: 1411007F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1249. fundur

1408131 - Arakór 5. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$1408132 - Arakór 7. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$1410079 - Þverbrekka 8. Breytt notkun húsnæðis.$line$Lögð fram í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Þverbrekku 8, dags. 3.11.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Tillöguna samþykktu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Sigríður Ása Richardsdóttir og Birkir Jón Jónsson. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.$line$$line$1304237 - Smárinn. Endurskoðun deiliskipulags.$line$Lögð fram í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: "Deiliskipulag. Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Ný vistvæn borgarbyggð" dags. 20.10.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu með áorðnum breytingum dags. 3.11.2014. Skipulagsnefnd samþykkti jafnframt með tilvísan í 38. grein skipulagslaga nr. 123/2010 heimild til að hefja vinnu við endurskoðun deiliskipulags á svæðinu sem afmarkast af Smárahvammsvegi, Fífuhvammsvegi, Reykjanesbraut og Hagasmára. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.