Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulagsnefnd - 1249. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Anna María Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Sigríður Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Andrés Pétursson - varafulltrúi
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
  • Smári Magnús Smárason - starfsmaður nefndar
  • Þóra Jóhannesdóttir Kjarval - starfsmaður nefndar
  • Gísli Norðdahl - byggingarfulltrúi
  • Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs

Ritari

  • Þóra Kjarval

Andrés Pétursson sat fundinn í stað Sverris Óskarssonar.

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 2749. Fundur haldinn 6. nóvember 2014.

1408131 - Arakór 5. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$1408132 - Arakór 7. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$1410079 - Þverbrekka 8. Breytt notkun húsnæðis.$line$Lögð fram í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Þverbrekku 8, dags. 3.11.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$1304237 - Smárinn. Endurskoðun deiliskipulags.$line$Lögð fram í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: "Deiliskipulag. Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Ný vistvæn borgarbyggð" dags. 20.10.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu með áorðnum breytingum dags. 3.11.2014. Skipulagsnefnd samþykkti jafnframt með tilvísan í 38. grein skipulagslaga nr. 123/2010 heimild til að hefja vinnu við endurskoðun deiliskipulags á svæðinu sem afmarkast af Smárahvammsvegi, Fífuhvammsvegi, Reykjanesbraut og Hagasmára. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

02

Bæjarstjórn - 1105. Fundur haldinn 11. nóvember 2014.

1408131 - Arakór 5. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$1408132 - Arakór 7. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum.$line$$line$1410079 - Þverbrekka 8. Breytt notkun húsnæðis.$line$Lögð fram í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Lýsing fyrir breytingu á verslunar- og þjónustusvæði við Þverbrekku 8, dags. 3.11.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Tillöguna samþykktu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Sigríður Ása Richardsdóttir og Birkir Jón Jónsson. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.$line$$line$1304237 - Smárinn. Endurskoðun deiliskipulags.$line$Lögð fram í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: "Deiliskipulag. Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Ný vistvæn borgarbyggð" dags. 20.10.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu með áorðnum breytingum dags. 3.11.2014. Skipulagsnefnd samþykkti jafnframt með tilvísan í 38. grein skipulagslaga nr. 123/2010 heimild til að hefja vinnu við endurskoðun deiliskipulags á svæðinu sem afmarkast af Smárahvammsvegi, Fífuhvammsvegi, Reykjanesbraut og Hagasmára. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

03

Engihjalli - Þróunarverkefni

Greint frá íbúaþingi sem haldið var í Álfhólsskóla laugardaginn 8. nóvember 2014 á vegum Engihjallasamtakanna.

Kynnt.

04

Hverfisskipulag

Greint frá íbúafundi sem haldinn var í Smáraskóla fimmtudaginn 13. nóvember 2014.

Kynnt.

05

Hreinsunarátak á atvinnusvæðum í Kópavogi

Frá umhverfis- og samgöngunefnd:$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 4.11.2014 var samþykkt að fela Umhverfissviði að gera drög að aðgerðaráætlun vegna hreinsunarátaks á atvinnusvæðum í Kópavogi og vísaði hreinsunarátaki á Kársnesi til umsagnar skipulagsnefndar.

Lagt fram og kynnt.

06

Austurkór 153. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju erindi Haralds Valbergssonar, byggingarfræðings, dags. 10.10.2014, f.h. lóðarhafa vegna breytts deiliskipulags Austurkórs 153. Í breytingunni felst að í stað einbýlishúss á einni hæð og kjallara (þremur pöllum) komi einbýlishús á einni hæð. Aðkomukóti íbúðarhússins verður 119,50 og bílgeymsla 10cm neðar sbr. uppdráttum dags. 10.10.2014.$line$$line$Þá lagt fram samþykki þeirra lóðarhafa sem fengu kynninguna senda dags. 4.11.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

07

Álfhólsvegur 111. Fjölgun íbúða.

Lagt fram erindi Rúm Teiknistofu, dags. 31.9.2014, f.h. lóðarhafa. Óskað er eftir því að breyta 204m2 íbúð á efstu hæð hússins í tvær 102m2 íbúðir. Inngangi verði bætt við vestan megin á 3. hæð hússins og svölum bætt við á norðurhlið sbr. uppdráttum dags. 31.9.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Álfhólsveg 94, 96, 98, 109 og 113 ásamt Selbrekku 28, 30, 32, 34 og 36.

08

Fagrabrekka 39. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Sigurðar Hafsteinssonar, byggingartæknifræðings, dags. 6.11.2014 f.h. lóðarhafa Fögrubrekku 39. Óskað er eftir að taka í notkun ónýtt rými í kjallara hússins. Heildarbyggingarmagn hækkar úr 208,8m2 í 233,6m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,25 í 0,28. Einn gluggi bætist við á austurhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 23.10.2014.

Skipulagsnefnd taldi framlagða tillögu ekki varða hagsmuni annarra en lóðarhafa og/eða sveitarfélagsins og samþykkti tillöguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

09

Hlíðarvegur 4. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Teiknistofunnar Arko, dags. 24.10.2014, f.h lóðarhafa Hlíðarvegar 4. Óskað er eftir að stækka kjallara um 22,9m2 til suðurs og endurbyggja timbursvalir á 1. hæð á þaki stækkunar. Heildarbyggingarmagn eftir stækkun verður 380,7m2 og nýtingarhlutfall 0,39 sbr. uppdráttum dags. 24.10.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hlíðarvegs 2 og 6 ásamt Hlíðarhvammi 12.

10

Dimmuhvarf 11. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram erindi GINGI Teiknistofu, dags. 15.10.2014, f.h. lóðarhafa Dimmuhvarfs 11. Óskað er eftir að í stað einnar lóðar með einbýlishúsi og mökuleika á hesthúsi verði lóðinni skipt í tvær einbýlishúsalóðir, annars vegar 769m2 að stærð og 647m2 annars vegar. Á lóðunum verði tvö einbýlishús, 130-140m2 að stærð á 1-1,5 hæð með 32m2 sambyggðum bílgeymslum. Hámarkshæð bygginga verður 5,2 m og nýtingarhlutfall 0,4 sbr. uppdráttum dags. í október 2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

11

Vesturvör 12. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju erindi Einars V. Tryggvasonar arkiteks dags. 12.9.2014 f.h. lóðarhafa vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar að Vesturvör 12. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vesturvarar 7, 9, 11A, 11B, 13 og 14; Kársnesbraut 82, 82a, 86, 88, 90, 92, 94 og 96 ásamt lóðahöfum norðan Vesturvarar 12. Kynningu lauk 27.10.2014. Athugasemdir bárust frá; Þórði Inga Guðjónssyni, Kársnesbraut 82a, dags. 27.10.2014; Héðni Sveinbjörnssyni og Sigríði Tryggvadóttur, Kársnesbraut 82, dags. 27.10.2014; Halldóri Svanssyni, dags. 27.10.2014. Á fundi skipulagsnefndar 3.11.2014 var málinu frestað og skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umsögn um framkomnar athugasemdir.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 17.11.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða tillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 17.11.2014. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

12

Auðnukór 7. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju erindi Ívars Ragnarssonar, byggingafræðings, f.h. lóðarhafa vegna breytt deiliskipulags Auðnukórs 7. Í breytingunni felst að svalir fara út fyrir byggingarreit á norðurhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 08.03.2014 í mkv. 1:100. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Auðnukórs 5 og 9. Kynningu lauk 27.10.2014. Athugasemd barst frá Illuga Fanndal Bjarkarsyni, Auðnukór 5, dags. 17.10.2014. Á fundi skipulagsnefndar 3.11.2014 var málinu frestað og skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umsögn um framkomnar athugasemdir.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 17.11.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða breytingartillögu ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 17.11.2014. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

13

Auðbrekka. Þróunarsvæði.

Kynningar á hugmyndavinnu fyrir Auðbrekkusvæðið frá H3 arkitektum, KRark, Apparat ehf, T.ark, Yrki arkitektum og ASK arkitektum.

Kynnt.

Önnur mál:

Skipulagsefnd og skipulags- og byggingardeild var fært sitt hvort eintakið af bókinni "Scarcity in Excess" að gjöf. Gefandi er ritstjóri bókarinnar Arna Mathiesen.