Framlög úr Jöfnunarsjóði 2015. Áætluð úthlutun, endanleg úthlutun, hreyfingalistar.
Málsnúmer: 1411018
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2822. fundur
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 10. maí, lögð fram tilkynning um endanlega úthlutun framlags úr sjóðnum vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum 2016.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til afgreiðslu.
02
Bæjarráð - 2805. fundur
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 12. janúar, lagt fram erindi vegna greiðslu á útlögðum kostnaði Barnaverndarstofu vegna almennrar kennslu og sérkennslu þeirra barna sem vistuð eru utan lögheimilissveitarfélags af Barnaverndarstofu og stunda þar grunnskólanám.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til afgreiðslu.
03
Bæjarráð - 2802. fundur
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 17. desember, lagt fram bréf vegna uppgjörs á framlögum vegna yfirfærslu grunnskóla og vegna þjónustu við fatlað fólk á rekstrargrunn. Framangreind framlög verða desembermánaðar verða bókfærð þann 31. desember nk. sem hefur í för með sér að uppgjör framlaga sjóðsins til sveitarfélaga vegna ársins 2015 mun ekki liggja fyrir hjá sjóðnum fyrr en um mánaðarmótin janúar/febrúar 2016.
Bæjarráð vísar málinu til fjármála- og hagsýslustjóra til afgreiðslu.
04
Bæjarráð - 2774. fundur
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 28. apríl, lagt fram bréf þar sem tilkynnt er um úthlutun jöfnunarframlags úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til reksturs grunnskóla, að frádregnum kostnaði Barnaverndarstofu.
Lagt fram.
05
Bæjarráð - 2774. fundur
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 28. apríl, lagt fram bréf þar sem tilkynnt er um úthlutun jöfnunarframlags úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum 2015.
Lagt fram.
06
Bæjarráð - 2773. fundur
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 27. apríl, lagt fram bréf þar sem tilkynnt er um endanlegt framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2015.
Lagt fram.