Bæjarráð - 2822. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
- Kristinn Dagur Gissurarson - varamaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, lagðar fram mánaðarskýrslur vegna starfsemi í febrúar og mars.
Lagt fram.$line$$line$Ingólfur Arnarson fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Frá fjármálastjóra, dags. 13. maí, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Álalindar 14, Leigugarða ehf., um heimild til veðsetningar lóðarinnar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði umbeðið veðleyfi.
Frá bæjarlögmanni, fulltrúar eigenda lóða á svæðinu sunnan Smáralindar (Hagasmára og Hæðasmára) munu mæta til fundar og gera grein fyrir áformuðum framkvæmdum.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstjórnar.$line$$line$Steingrímur Hauksson sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá lögfræðideild, dags. 11. maí, lögð fram umsögn um rekstur og staðsetningu ökutækjaleigu í samræmi við beiðni Samgöngustofu frá 3. maí. Umsækjandi er Vladimir Rjaby f.h. Autuplus ehf. Sótt er um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með 5-10 bifreiðar. Sveitarstjórn staðfestir sem umsagnaraðili að aðkoma og fjöldi bílastæða henti fyrir væntanlega starfsemi og hvað staðsetningu varðar er svæðið skilgreint sem athafna- og þróunarsvæði.
Bæjarráð samþykkir umsögnina fyrir sitt leyti og staðfestir að rekstrarleyfið er í samræmi við skipulag og aðkomu á umsóttu svæði og fjöldi bílastæða nægir fyrir umsóttum fjölda ökutækja.
Frá Garðyrkjufélagi Íslands, dags. 2. maí, lögð fram ályktun af aðalfundi félagsins að því er varðar framtíð Gróðrarstöðvarinnar Mörk.
Lagt fram.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 10. maí, lögð fram tilkynning um endanlega úthlutun framlags úr sjóðnum vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum 2016.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til afgreiðslu.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 10. maí, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla (stjórnarfrumvarp), 675. mál.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Frá Matthíasi Baldurssyni, dags. 17. apríl, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku á Ólympíuleikum í eðlisfræði í Sviss.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.
49. aðalfundur Kvenfélagasambands Kópavogs í 9. liðum.
Lagt fram.
37. fundur forvarna- og frístundanefndar í 32. liðum.
Lagt fram.
103. fundur hafnarstjórnar í 2. liðum.
Lagt fram.
59. fundur íþróttaráðs í 73. liðum.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 13. maí, lagt fram erindi HK þar sem farið er fram á að bætt verði aðstaða til iðkunar strandblaks í Fagralundi. Íþróttaráð bókaði á fundi sínum þann 12.05.2016 að það teldi rétt að bæjarráð skoðaði málið með hliðsjón af viðhaldsþörf íþróttamannvirkja í Kópavogi í áætlanagerð sinni þar sem ekki liggja fyrir fjármunir í verkefnið að svo stöddu.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til kostnaðarumsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 13. maí, lagt fram erindi varðandi kostnað við endurbætur og viðhald á frjálsíþróttaaðstöðu á Kópavogsvelli. Íþróttaráð bókaði á fundi sínum þann 12.05.2016 að það teldi rétt að bæjarráð skoðaði málið með hliðsjón af viðhaldsþörf íþróttamannvirkja í Kópavogi í áætlanagerð sinni þar sem ekki liggja fyrir fjármunir í verkefnið að svo stöddu.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til kostnaðarumsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.