Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aldursdreifing þjónustuþega heimaþjónustu

Málsnúmer: 1411040

Ferill máls

01

Félagsmálaráð - 1415. fundur

02

Félagsmálaráð - 1413. fundur

Á fundi félagsmálaráðs þann 6. júní var óskað eftir upplýsingum um aldursdreifingu eldri borgara í bænum.

Lagt fram.$line$Óskað var eftir yfirliti yfir þjónustu velferðarsviðs við mismunandi aldurshópa aldraðra.

03

Félagsmálaráð - 1413. fundur

Karen E. Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn: "Óska eftir tölfræði síðustu 12 mánaða um seldar máltíðir í þjónustumiðstöðvum aldraðra. Einnig að dregið verði frá þeim tölum fjöldi þeirra sem eru í dagvistun í Boðanum. Einnig fá yfirlit um ábendingar um ánægju eða óánægju um gæði þjónustunnar sem veitt er."

Lögð var fram staðfesting á því að bókunin hafi verið send menntasviði til afgreiðslu.

04

Félagsmálaráð - 1412. fundur

Lagt fram.$line$$line$Karen E. Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn: "Óska eftir tölfræði síðustu 12 mánaða um seldar máltíðir í þjónustumiðstöðvum aldraðra. Einnig að dregið verði frá þeim tölum fjöldi þeirra sem eru í dagvistun í Boðanum. Einnig fá yfirlit um ábendingar um ánægju eða óánægju um gæði þjónustunnar sem veitt er."

05

Félagsmálaráð - 1411. fundur

Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri kynnti stöðu mála í þjónustu- og ráðgjafardeild fatlaðra.$line$Félagsmálaráð þakkaði fyrir framlagða skýrslu og upplýsingar. Auk þess var eftirfarandi bókað:$line$"Ljóst er að mikil þörf er á því að bæta fjármagni í þjónustu við fatlað fólk og mælst er til þess að bæjarstjórn hafi framlögð gögn til hliðsjónar við gerð næstu fjárhagsáætlunar."

06

Félagsmálaráð - 1409. fundur

Óskað var eftir kynningu á stöðu mála í þjónustudeild fatlaðs fólks og þjónustudeild aldraðra, þ.m.t. fjölda notenda, hversu mikla þjónustu verið er að veita og á hverju mat á þjónustuþörf er byggt.

07

Félagsmálaráð - 1407. fundur

Guðbjörg Sveinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun: $line$"Hversu mikla þjónustu kaupir Kópavogsbær af félögum sem sinna velferðarþjónustu, sundurgreint eftir félögum (tímar, upphæðir, fjöldi einstaklinga sem nýta þjónustuna)? $line$Hefur farið fram útboð á þessum þjónustukaupum?$line$Hefur verið leitað samþykkis félagsmálaráðs vegna slíkra þjónustukaupa?$line$Eru gerðar kröfur um faglega þekkingu/stjórnun við slík kaup?$line$Eru til verklagsreglur velferðarsviðs vegna slíkra kaupa?"

08

Félagsmálaráð - 1400. fundur

Arnþór Sigurðsson óskaði eftir því að skýrsla og tillögur húsnæðisnefndar verði settar á dagskrá næsta fundar.

09

Félagsmálaráð - 1386. fundur

Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir, Matthias Imsland og Arnþór Sigurðsson óskuðu eftir upplýsingum um fjölda beingreiðslusamninga og kostnað vegna þeirra.

Fulltrúar meirihluta tóku undir tillöguna.

10

Félagsmálaráð - 1381. fundur

Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir, Matthías Imsland og Arnþór Sigurðsson bóka eftirfarandi:$line$"Fulltrúar minnihlutans óska eftir kynningu á drögum að fjárhagsáætlun velferðarsviðs áður en tekin verður endanleg ákvörðun um hana."$line$$line$Gert var hlé á fundi kl.18:18 og hófst hann aftur kl.18:31.$line$$line$Eftirfarandi bókun var lögð fram:$line$"Undirritaðir fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar bóka að fjárhagsáætlun hefur verið lögð fram og fyrri umræða hefur farið fram um hana. Við undirrituð sjáum ekki ástæðu til að kalla eftir sérstakri umræðu um fjárhagsáætlun í félagsmálaráði á þessum tímapunkti.$line$Gunnsteinn Sigurðsson, Ragnheiður S. Dagsdóttir, Vilhjálmur Einarsson og Rannveig Bjarnadóttir"$line$$line$Gert var hlé á fundi til kl.18:40.$line$$line$Fulltrúar minnihlutans bóka:$line$"Engin kynning á fjárhagsáætlun 2015 hefur farið fram í félagsmálaráði. Við undirrituð furðum okkur á leyndarhyggjunni og köllum eftir opnari og gagnsærri stjórnsýslu. Við ítrekum ósk okkar um kynningu."$line$$line$Fundarhlé gert frá kl. 18:43 til kl. 18:48.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Fyrsta umræða um fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir fjárhagsárið 2015 fór fram 11. nóvember á opnum bæjarstjórnarfundi og öll gögn eru aðgengileg á heimasíðu bæjarins."

11

Félagsmálaráð - 1379. fundur

Óskað var eftir því að málefni heimahjúkrunar/heimaþjónustu verði rædd frekar á fundi ráðsins síðar á þessu ári.$line$Óskað var eftir umræðu um skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð.$line$Einnig var óskað eftir fundi með nefnd bæjarins um húsnæðismál.