Félagsmálaráð - 1412. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnsteinn Sigurðsson - formaður
- Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðbjörg Sveinsdóttir - varafulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Helga Sigrún Harðardóttir - aðalfulltrúi
- Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
- Anna Klara Georgsdóttir - verkefnastjóri
- Rannveig María Þorsteinsdóttir - yfirmaður húsnæðisdeildar
Ritari
- Anna Klara Georgsdóttir
Dagskrá fundar
Félagsmálaráð fagnar framlögðum drögum að framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum.$line$$line$Kristín Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Í framkvæmdaáætlun jafnréttis- og mannréttindaráðs er ekki tekið á brottfalli minnihlutahópa s.s. hinsegin ungmenna og barna af erlendum uppruna úr íþróttastarfi. Ljóst er að þessir hópar verða fyrir fordómum við íþróttaiðkun og mikil þörf er á að bregðast við með raunhæfum aðgerðum. Kópavogsbær getur stutt við íþróttafélögin með markvissri fræðslu til þjálfara og annarra aðstandenda íþróttafélaganna um málefni hinsegin ungmenna og ungmenna af erlendum uppruna."$line$$line$Félagsmálaráð tók samhljóða undir bókun Kristínar. $line$Ennfremur vill félagsmálaráð beina því til jafnréttis- og mannréttindanefndar að sjálfstyrkingarnámskeið þau sem lögð eru til fyrir 13-16 ára stúlkur verði gerð aðgengileg öllum unglingum.
Fært í trúnaðarbók.$line$Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.$line$$line$Félagsmálaráð ályktar að mikil þörf er á því að bæta fjármagni í þjónustu við fatlað fólk og mælst er til þess að bæjarstjórn hafi það ofarlega í huga við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
Lagt fram.
Fært í trúnaðarbók.
Lögð voru fram svör við fyrirspurn sem lögð var fram á fundi ráðsins þann 2. maí sl. sem og tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð.$line$$line$Starfsmönnum var falið að útfæra breytingar á 30.gr. í samræmi við umræður fundar. Að öðru leyti samþykkti félagsmálaráð framlagðar breytingatillögur fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.
Lagðar voru fram fundargerð 127. úthlutunarfundar og greinargerðir.
Lagt fram.$line$$line$Karen E. Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn: "Óska eftir tölfræði síðustu 12 mánaða um seldar máltíðir í þjónustumiðstöðvum aldraðra. Einnig að dregið verði frá þeim tölum fjöldi þeirra sem eru í dagvistun í Boðanum. Einnig fá yfirlit um ábendingar um ánægju eða óánægju um gæði þjónustunnar sem veitt er."
Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi bókun: "Óskað er eftir greinargerð um möguleika þess að breyta akstursþjónustu fyrir fatlaða og gera hana sveigjanlegri með einstaklingsbundnum leigubílaakstri."$line$Ráðið tók undir bókunina.