Grenndargámar, útboð á þjónustu fyrir pappír, plast og gler.
Málsnúmer: 1411186
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2764. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 24. febrúar, lagt fram bréf þar sem lagt er til að bæjarráð samþykki tillögu deildarstjóra gatnadeildar sem svar við fyrirspurn Sorpu um óskir Kópavogsbæjar varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu deildarstjóra gatnadeildar sem svar við fyrirspurn Sorpu um óskir Kópavogsbæjar varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma.
02
Bæjarráð - 2755. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 16. desember, greinargerð varðandi fyrirhugað útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler.
Lagt fram.$line$$line$Deildarstjóra gatnadeildar falið að vinna áfram að málinu. $line$$line$Karl Eðvaldsson deildarstjóri gatnadeildar sat fundinn undir þessum lið.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 57. fundur
Lögð fram minnisblöð varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler dags. 27.11.2014.
Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að endurskoða þjónustu með grenndargáma og auka við sértæka söfnun.
04
Bæjarráð - 2750. fundur
Frá Sorpu bs., dags. 5. nóvember, óskað staðfestingar á forsendum útboðs á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.