Tillaga um skipun starfshóps vegna fyrirhugaðs öldungaráðs
Málsnúmer: 1411296
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2813. fundur
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Vel á annað ár er liðið frá því að tillaga um skipan starfshóps um stofnun Öldungaráðs í Kópavogi kom fram í bæjarráði. Tæpt ár er síðan bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að skipa starfshópinn. Ekkert hefur gerst í málinu. Hvort um sé að ræða verkkvíða bæjarstjóra eða einhverjar aðrar orsakir veit ég ekki, en ég skora á bæjarstjóra að ganga í málið og skipa starfshópinn ,enda óskiljanlegt það skuli taka bæjarstjórann tæpt ár að koma svo einföldu atriði í verk. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég fundaði fyrir stuttu með fulltrúa Félags eldri borgara um málið og komum við okkur saman um að það yrði skipaður starfshópur með fulltrúa meiri- og minnihluta bæjarstjórnar og fulltrúum félagsins. Er hér með óskað eftir tilnefningu frá minnihlutanum í starfshópinn.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég fagna því að starfshópurinn verði loks skipaður.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson"
02
Bæjarráð - 2791. fundur
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Tæpt ár er liðið frá því að tillaga Samfylkingar, Framsóknarflokks og VG um skipan starfshóps um stofnun Öldungaráðs í Kópavogi kom fram. 5 mánuði tók að ákveða að skipa starfshópinn og var það gert í bæjarráði 22. apríl 2015. Síðan eru liðnir tæpir 6 mánuðir og enn bólar ekkert á skipun starfshópsins. Óskað er eftir að bæjarstjóri gyrði sig í brók, leiti eftir tilnefningum í starfshópinn og boði til fundar hið fyrsta. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Birkir Jón Jónsson og Ólafur Þór Gunnarsson tóku undir bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Þakka áminninguna. Vil þó taka fram að í viðræðum mínum við Félag eldri borgara hefur komið fram að enginn pressa er af hálfu félagsins við stofnun Öldungaráðs. Það er þó ekki meiningin að bíða eftir því að Pétur Hrafn Sigurðsson verði eldri borgari og þar með félagi í Félagi eldri borgara.$line$Ármann Kr. Ólafsson"
03
Bæjarráð - 2772. fundur
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um skipun starfshóps sem hafi það að markmiði að stofnað verði öldungarráð.
Bæjarráð samþykkir að framlagða tillögu bæjarstjóra um skipun starfshóps.$line$$line$Bókun:$line$"Við fögnum því að tillaga Samfylkingar, Framsóknarflokks og VG um stofnun starfshóps sem hefur það að markmiði að stofna Öldungaráð í Kópavogi sé samþykkt. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson $line$Birkir Jón Jónsson$line$Ólafur Þór Gunnarsson"
04
Bæjarráð - 2770. fundur
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður ítrekar óskir sínar um að bæjarstjóri skili áliti um tillögu Samfylkingar, Framsóknarflokks og Vinstri grænna um skipan starfshóps sem hafi það að markmiði að stofna Öldungaráð í Kópavogi. Tillagan kom fyrst fram í bæjarráði 20. nóvember 2014 og nú 140 dögum seinna hefur bæjarstjóra ekki enn unnist ráðrúm til að klára málið. Vinnubrögð sem þessi eru ekki til fyrirmyndar. Vonast undirritaður eftir svari frá bæjarstjóra áður en hann sjálfur verður kominn í flokk eldri borgara.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Birkir Jón Jónsson tekur undir bókunina.
05
Bæjarráð - 2764. fundur
Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaður kallar eftir svörum frá bæjarstjóra um stofnun öldungaráðs.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson"
06
Bæjarráð - 2756. fundur
Frá Félagi eldri borgara í Kópavogi, dags. 18. desember, umsögn um tillögu að skipun starfshóps vegna fyrirhugaðs öldungaráðs.
Lagt fram og vísað til bæjarstjóra til úrvinnslu.
07
Bæjarráð - 2751. fundur
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og VGF leggja fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarráð feli bæjarstjórn Kópavogs að skipa starfshóp sem hafi það að markmiði að stofna Öldungaráð í Kópavogi.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson"
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar félags eldri borgara.