Frístundadeild-Hrafninn frístundablúbbur
Málsnúmer: 1412346
Ferill máls
01
Menntaráð - 83. fundur
Afgreiðsla á reglum um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn á mið- og unglingastigi grunnskóla, frestað frá síðasta fundi.
Menntaráð samþykkir reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn fyrir sitt leiti með öllum greiddum atkvæðum og vísar þeim til notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks.
02
Menntaráð - 82. fundur
Reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn á mið- og unglingastigi grunnskóla lagðar fram.
Máli frestað til næsta fundar.
03
Bæjarráð - 2990. fundur
Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 17. febrúar, lagt fram erindi um húsnæðismál frístundaklúbbsins Hrafnsins þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að hefja hönnun á breytingu húsnæðis í íþróttahúsi Digranes undir frístundaklúbbinn Hrafninn til að laga það betur að þörfum starfseminnar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita sviðstjórum menntasvið og umhverfissviðs umbeðna heimild.
04
Menntaráð - 11. fundur
Kynning á starfsemi.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir kynnti starfsemi Hrafnsins.
05
Forvarna- og frístundanefnd - 33. fundur
Forstöðumaður Hrafnsins mætir á fundinn og gerir grein fyrir sumar- og vetrarstarfi frístundaklúbbsins.
Frestað til næsta fundar.
06
Forvarna- og frístundanefnd - 32. fundur
Forstöðumaður gerir grein fyrir sumar- og vetrarstarfi Hrafnsins.
Frestað til næsta fundar.