Menntaráð - 11. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - formaður
- Ólafur Örn Karlsson - aðalmaður
- Helgi Magnússon - aðalmaður
- Sverrir Óskarsson - varaformaður
- Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
- Helga María Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Gísli Baldvinsson - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Arnar Björnsson - foreldrafulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Sigrún Bjarnadóttir - fulltrúi skólastjóra
- Guðni Ágústsson
Starfsmenn
- Ragnheiður Hermannsdóttir
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir
- Jana Eir Víglundsdóttir
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á starfsemi.
Amanda Karima Ólafsdóttir, verðandi deildarstjóri frístundadeildar kom og kynnti frístundastarf aldraðra.
Kynning á starfsemi.
Amanda Karima Ólafsdóttir, verðandi deildarstjóri frístundadeildar kynnti frístundastarf barna og ungmenna.
Kynning á starfsemi.
Andri Þór Lefever forstöðmaður Molans kom og kynnti starfsemina.
Kynning á starfsemi.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir kynnti starfsemi Hrafnsins.
Skýrsla um samræmdpróf í Kópavogi 2016 lögð fram.
Máli frestað til næsta fundar.
Menntaráð mælir með að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi tillögu starfshóps um húsnæðismál Kársnesskóla, sbr. greinargerð sem lögð var fyrir bæjarráð dags. 1. júní 2017 og vísað þaðan til bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs dags. 8. júní 2017:
"Í ljósi athugana sem gerðar hafa verið leggur starfshópurinn til, að vel athuguðu máli, að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin.
Lagt er til að starfsemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir, í húsnæði skólans þar og lausum kennslustofum.
Starfshópurinn leggur til að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna forsögn að hönnun nýrrar byggingar skólans."
Menntaráð fagnar frumkvæði grunnskóla í Kópavogi að lækka ritfangakostnað fjölskyldna vegna skólagöngu barna. Það er velferðarmál að dregið sé úr kostnaði við skólagöngu barna eins og unnt er og vel sé hlúð að börnum og fjölskyldum þeirra.
Menntaráð áréttar bókun skólanefndar á fundi dags. 3. október 2016 varðandi lækkun ritfangakostnaðar og mælir með að bæjarstjórn samþykki tillögu þess efnis að grunnskólarnir fari í aðgerðir við að lækka ritfangakostnað. Í þeim tilgangi verði hvatt til þess að grunnskólarnir skipuleggi m.a. sameiginleg innkaup í samstarfi við foreldra. Miðað verði við að kostnaður vegna hvers nemanda verði ekki hærri en 4000 kr. á næsta skólaári 2017 -2018.
Máli frestað til næsta fundar.
Arnar Björnsson fulltrúi foreldra í menntaráði og Sigrún Bjarnadóttir fulltrúi skólastjóra í menntaráði láta af störfum í ráðinu. Menntaráð þakkar þeim gott samstaf.