Fornahvarf 3. Settjörn, framkvæmdaleyfi.
Málsnúmer: 1412485
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1115. fundur
Óskað er eftir leyfi skipulagsnefndar til að hefja framkvæmdir við gerð settjarna við Fornahvarf 3.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdaleyfi fyrir gerð settjarna við Fornahvarf 3. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Skipulagsnefnd - 1257. fundur
Óskað er eftir leyfi skipulagsnefndar til að hefja framkvæmdir við gerð settjarna við Fornahvarf 3.
Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdaleyfi fyrir gerð settjarna við Fornahvarf 3. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
03
Bæjarráð - 2768. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 24. mars, lagðar fram niðurstöður tilboða í verkið "Settjarnir við Fornahvarf" og lagt til að samið verði við lægstbjóðanda Jarðval sf. um framkvæmd verksins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að samið verði við Jarðval sf. um verkið "Settjarnir við Fornahvarf".
04
Bæjarráð - 2758. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 12. janúar, óskað heimildar til að bjóða út í opnu útboði gerð settjarnar við Fornahvarf 2.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til útboðs.
05
Bæjarráð - 2756. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29,. desember, drög að samningi um breytingar á lóðamörkum Fornahvarfs 3.
Bæjarráð samþykkir drög að samningi um breytingar á lóðamörkum Fornahvarfs 3.$line$$line$Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.