Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árin 2012, 2013, 2014.

Málsnúmer: 1412547

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2786. fundur

Frá bæjarritara, dags. 26. ágúst, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Skíðadeildar Ármanns um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 2.216.885,-. verði samþykkt, enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum styrk að upphæð kr. 2.216.885,-. til greiðslu fasteignaskatts á fasteign félagsins vegna 2012, 2013 og 2014.

02

Bæjarráð - 2756. fundur

Frá skíðadeild Ármanns, dags. 27. október, umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts á skíðaskála félagsins í Bláfjöllum.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.