Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hlíðarhjalli Dalvegur gatnamót, athugasemdir.

Málsnúmer: 1412561

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2883. fundur

Frá Hjálmari H. Ragnarssyni, dags. 14. september, lagt fram þakkarbréf vegna Hlíðarhjalla og Dalvegar.

Lagt fram.

Ása Richardsdóttir vék af fundi kl. 7:56 vegna vanhæfis. Ása Richardsdóttir kom aftur til fundar kl. 7:58.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 78. fundur

Frá umhverfissviði lagðar fram útfærslur og samanburður á umferðarlausnum við gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti með atkvæðagreiðslu framlagða útfærslu á umferðarstýrðum umferðarljósum við gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar í samræmi við umferðarskipulag Kópavogsbæjar 2012. Hjördís Ýr Johnson, Hreiðar Oddsson, Ísól Fanney Ómarsdóttir og Sigurður Grétarsson greiddu atkvæði með tillögunni.

Einar Baldursson greiddi atkvæði gegn tillögunni.

Einar Baldursson bókaði að hann mælir með hringtorgi.

Sigurður Grétarsson bókaði að ljósstýring tæki mið af hjólareiðafólki og skynjaði nærveru þeirra.

Hreggviður Norðdahl bókaði að skipulagsvinnu við austurhluta Dalvegar verði hraðað. Hjördís Ýr Johnson, Hreiðar Oddsson, Ísól Fanney Ómarsdóttir, Sigurður Grétarsson og Einar Baldursson tóku undir bókunina.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 76. fundur

Frá umhverfissviði lögð fram tillaga að hringtorgi við gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar.

Umhverfis- og samgöngunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum um útfærslur og samanburð á framlögðum tillögum frá deildarstjóra gatnadeildar umhverfissviðs. Nefndin óskaði eftir svari á næsta fund nefndarinnar.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 75. fundur

Á 1274 fundi skipulagsnefndar lagði skipulagsnefnd til að sett verði upp ljósastýring á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Á 2815 fundi bæjarráðs, Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lagt fram frá umhverfis- og samgöngunefnd, erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi úrbætur á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla dags. 29.2.2016. Skipulagsnefnd lagði til að sett yrði upp ljósastýring á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar umsögn skipulagsnefndar til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umhverfissviðs og skila tillögu að útfærslu og kostnaðaráætlun á hringtorgi á umræddum stað á næsta fundi nefndarinnar.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 62. fundur

Lagt fram erindi frá íbúa við Lækjarhjalla, dags. 15.12.2014 varðandi gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar. Á fundi bæjarráðs 15.1.2015 var erindinu til umhverfis-og samgöngunefndar til úrvinnslu.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að gera tillögu að útfærslu á umræddum stað.

06

Bæjarráð - 2758. fundur

Frá íbúa við Lækjarhjalla, dags. 15. desember, athugasemdir varðandi gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.$line$$line$Ása Richardsdóttir vék af fundi undir þessum lið.