Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Funahvarf 2, Vatnsendaskóli-Íþróttahús Gerpla.

Málsnúmer: 1501300

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2925. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 31. ágúst, lagt fram svar við fyrirspurn um skýringu á umframkostnaði vegna lokauppgjörs á íþróttahúsi við Vatnsenda í bæjarráði þann 23. ágúst sl.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2924. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 8. ágúst, lagt fram svar við fyrirspurn um greiningu á lokauppgjöri á íþróttahúsi við Vatnsenda í bæjarráði þann 12. júlí sl.

Lagt fram.

Bókun frá Einari Þorvarðarsyni, bæjarfulltrúa BF Viðreisnar:

"Óskað er eftir skýringum á umframkostnaði."

03

Bæjarráð - 2893. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dags. 27. nóvember, lagt fram erindi er varðar val á tilboðum í verkið "Kópavogur - Íþróttahús Vatnsendaskóla fimleikabúnaður".

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Altis ehf um fimleikabúnað í verkið "Vatnsendaskóli Íþróttahús fimleikabúnaður" fyrir liði 3.1, 3.2, og 3.3 að upphæð 83.525.012 kr.

04

Bæjarstjórn - 1129. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 8. desember, lögð fram drög að verksamningi við Baldur Jónsson ehf. vegna byggingar fimleikaíþróttahúss við Vatnsendaskóla og lagt til að verksamningurinn verði samþykktur. Bæjarráð vísaði drögum að verksamningi við Baldur Jónsson ehf. vegna byggingar fimleikaíþróttahúss við Vatnsendaskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir drög að verksamningi við Baldur Jónsson ehf. vegna byggingar fimleikaíþróttahúss við Vatnsendaskóla með 10 atkvæðum.$line$$line$Jón Finnbogason vék af fundi undir þessum lið.

05

Bæjarráð - 2802. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 8. desember, lögð fram drög að verksamningi við Baldur Jónsson ehf. vegna byggingar fimleikaíþróttahúss við Vatnsendaskóla og lagt til að verksamningurinn verði samþykktur. Samkvæmt drögum að verksamningi eru 25 milljónir til greiðslu á árinu 2015 og þarf samþykki bæjarráðs fyrir greiðslu þeirrar upphæðar vegna þeirrar vinnu sem þegar hefur verið unnin, þar til verksamningur hefur verið samþykktur.

Bæjarráð vísar drögum að verksamningi við Baldur Jónsson ehf. vegna byggingar fimleikaíþróttahúss við Vatnsendaskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Bæjarráð samþykkir 25 m.kr. greiðslu til Baldurs Jónssonar ehf., sbr. framlagðan verksamning.

06

Bæjarráð - 2794. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 22. október, lagðar fram niðurstöður aðlútboðs vegna byggingar fimleikaíþróttahúss við Vatnsendaskóla og lagt til að leitað verði samninga við Baldur Jónsson ehf. um verkið þar sem hann er með hæstu heildareinkunn og hagstæðasta tilboðið.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela sviðsstjórum stjórnsýslu- og umhverfissviðs að ganga til samninga við Baldur Jónsson ehf. um verkið.

07

Bæjarráð - 2790. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 22. september, lagt fram erindi þar sem lagt er til að skipuð verði sex manna matsnefnd sem fari yfir allar innsendar tillögur og verðtilboð þátttakenda í alútboði vegna byggingar íþróttahúss við Vatnsendaskóla.

Bæjarráð samþykkir að skipa átta manna matsnefnd. Í henni sitji tveir bæjarfulltrúar, tveir fulltrúar menntasviðs, tveir fulltrúar umhverfissviðs og tveir fulltrúar Gerplu.

08

Bæjarráð - 2789. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 22. september, lagt fram erindi þar sem lagt er til að skipuð verði sex manna matsnefnd sem fari yfir allar innsendar tillögur og verðtilboð þátttakenda í alútboði vegna byggingar íþróttahúss við Vatnsendaskóla. Lagt er til að nefndin verði skipuð tveimur aðilum frá umhverfissviði, tveimur frá menntasviði og tveimur frá Gerplu.

Frestað.

09

Bæjarráð - 2779. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 15. júní, lögð fram niðurstaða í forvali við vali á verktökum sem óskuðu eftir að taka þátt í alútboði fyrir byggingu íþróttahúss við Vatnsendaskóla.$line$Lagt er til að eftirtöldum 5 verktökum verði gefinn kostur á að taka þátt í lokuðu alútboði: ÍAV ehf., Ístak hf., Spennt ehf., Jáverk ehf. og Baldur Jónsson ehf.

Bæjarráð samþykkir tillögu deildarstjóra framkvæmdadeildar um þátttakendur í forvali.

10

Bæjarráð - 2771. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 26. mars, lagt fram bréf vegna fyrirhugaðs útboðs á byggingu íþróttahúss, búningsaðstöðu og fjögurra kennslustofa við Vatnsendaskóla. Ætluð hlutdeild Kópavogsbæjar vegna mannvirkisins er um kr. 720 milljónir vegna íþróttahúss og búnaðar og 140 milljónir vegna skóla, sem greiðist á árunum 2015-2018.

Lagt fram.

11

Skólanefnd - 83. fundur

Kynning á fyrirhuguðum framkvæmdum.

Kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir við byggingu íþróttahúss við Vatnsendaskóla.

12

Bæjarráð - 2760. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 12. janúar, óskað heimildar til að bjóða út byggingu íþróttahúss, búningsaðstöðu og fjórar kennslustofur við Vatnsendaskóla.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild.