Bæjarráð - 2790. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Guðjón Ármannsson frá lögmannsstofunni LEX gerði grein fyrir stöðu mála.
Hlé var gert á fundi kl. 8.10. Fundi var fram haldið kl. 8.40.$line$$line$Lagt fram.
02
Auðnukór 7, krafa um bætur vegna fjártjóns, óþæginda og ama við meðhöndlun byggingarnefndar.
Frá lögfræðideild, dags. 28. september, lagt fram minnisblað vegna bótakröfu lóðarhafa Auðnukórs 7 vegna meðhöndlun byggingarnefndar á umsóknum um byggingarleyfi.
Bæjarráð hafnar kröfu um bætur á grundvelli framlagðs minnisblaðs lögfræðideildar með fimm atkvæðum.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 28. september, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í lokuðu útboði fullnaðarfrágang á félags- og þjónustuhúsi Guðmundarlundi, þar sem nánar tilgreindum verktökum verði gefinn kostur á að bjóða í verkið.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að boðið verði út í opnu útboði fullnaðarfrágangur á félags- og þjónustuhúsi Guðmundarlundar.
Frá deildarstjóra í þjónustudeild fatlaðra, dags. 24. september, lagt fram erindi vegna endurskoðun á 6. gr. reglna um stuðningsþjónustu fyrir fatlað fólk hjá Kópavogsbæ.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Frá forsætisráðuneyti, dags. 23. september, lagt fram erindi þar sem óskað er umsagnar um verkefnislýsingu ráðuneytisins um eigendastefnu fyrir þjóðlendur skv. lögum nr. 58/1998.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns og sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Frá forsætisráðuneyti, dags. 25. september, lagt fram erindi þar sem boðað er til kynningarfundar um ný lög um verndarsvæði í byggð þann 8. október.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns og sviðsstjóra umhverfissviðs til afgreiðslu.
07
Tillaga til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs, 16. mál. Beiðni um umsögn.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 28. september, lagt fram til umsagnar tillaga um þingsályktun um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs (þingmannamál), 16. mál.
Lagt fram.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 24. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um náttúruvernd (stjórnarfrumvarp), 140. mál.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
09
Frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, 133. mál. Beiðni um umsögn.
Frá umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 24. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (stjórnarfrumvarp), 133. mál.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 23. september, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026, 101. mál.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 21. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar (þingmannamál), 3. mál.
Lagt fram.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 21. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um byggingarsjóð Landspítala (þingmannamál), 4. mál.
Lagt fram.
13
Frumvarp til laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og málefni aldraðra (uppfærsluréttur íbúðarréttar). Beiðni um umsögn.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 22. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um sjóði og stofnanir sem starfa skv. staðfestri skipulagsskrá og málefni aldraðra (þingmannamál), 35. mál.
Lagt fram.
Frá prestum í Kópavogi, dags. 22. september, lagt fram erindi út af ákvörðun bæjarstjórnar um móttöku flóttafólks þar sem óskað eftir samtali vegna áhuga á samstarfi og aðstoð við undirbúning og móttöku flóttafólks.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til afgreiðslu.
91. fundur skólanefndar í 4. liðum.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 29. september, lagt fram erindi vegna afgreiðslu skólanefndar á tillögu um gjaldfrjálsan grunnskóla í Kópavogi, ásamt minnisblaði um kostnaðargreiningu.
Bæjarráð vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar.
354. fundur stjórnar Sorpu í 3. liðum.
Lagt fram.
224. fundur stjórnar Strætó í 4. liðum.
Lagt fram.
225. fundur stjórnar Strætó í 4. liðum.
Lagt fram.
Frá bæjarstjóra, fundarboð vegna samráðs bæjarfulltrúa við gerð fjárhagsáætlunar 2016.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 22. september, lagt fram erindi þar sem lagt er til að skipuð verði sex manna matsnefnd sem fari yfir allar innsendar tillögur og verðtilboð þátttakenda í alútboði vegna byggingar íþróttahúss við Vatnsendaskóla.
Bæjarráð samþykkir að skipa átta manna matsnefnd. Í henni sitji tveir bæjarfulltrúar, tveir fulltrúar menntasviðs, tveir fulltrúar umhverfissviðs og tveir fulltrúar Gerplu.