Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendaskóli - Funahvarf 2 - Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1502349

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1120. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs Kópavogs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Einnig lögð fram umsögn umhverfissviðs. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi Funahvarfs 2 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og með vísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sverrir Óskarsson kemur aftur til fundar.$line$$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2780. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs Kópavogs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Einnig lögð fram umsögn umhverfissviðs. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi Funahvarfs 2 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og með vísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1262. fundur

Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs Kópavogs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Á fundi skipulagsnefndar 15.6.2015 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu umhverfissviðs.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn umhverfissviðs dags. 22.6.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu dags. 22.6.2015 að breyttu deiliskipulagi Funahvarfs 2 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og með vísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 22.6.2015. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1261. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa.$line$Á fundi skipulagsnefndar 16.3.2015 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Kynningu lauk 8.6.2015. Athugasemdir bárust frá Húsfélagi Fellahvarfs 3, dags. 7.6.2015; frá Fellahvarfi 19 og 23, dags. 7.6.2015.

Frestað. Vísað til úrvinnslu umhverfissviðs.

05

Bæjarstjórn - 1113. fundur

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:250 dags. 5.1.2015. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi, Pétur Hrafn Sigurðsson, greiddi ekki atkvæði.

06

Bæjarráð - 2767. fundur

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:250 dags. 5.1.2015.$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

07

Skipulagsnefnd - 1255. fundur

Lögð fram tillaga umhverfissviðs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:250 dags. 5.1.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.