Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2780. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - varafulltrúi
  • Sigurjón Jónsson - vara áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Páll Magnússon

Pétur Hrafn Sigurðsson aldursforseti setti fund og stýrði kjöri formanns og varaformanns.

Dagskrá fundar

Kosningar

01

Kosningar í bæjarráði til eins árs.

Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs 2015.

Theódóra Þorsteinsdóttir var kjörin formaður með fimm atkvæðum og Karen Halldórsdóttir var kjörin varaformaður með fimm atkvæðum.$line$$line$Tók Theódóra Þorsteinsdóttir við stjórn fundarins.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku og skal bæjarráð festa fundartíma ráðsins í upphafi skipunartíma þess, sbr. 47. gr. bæjarmálasamþykktar um stjórn Kópavogsbæjar.

Bæjarráð samþykkir að reglulegir fundir ráðsins verði vikulega á fimmtudögum kl. 8:00.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að í júlí verði fundir bæjarráðs, þann 2., 16. og 30. og í ágúst verði fundir þann 13. og 27.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar

Frá bæjarstjóra, tillaga um húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar, sem frestað var á fundi bæjarstjórnar þann 23. júní sl.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna frekari greiningu á söluverðmæti Fannborgarreits.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Austurkór 14. Umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 18. júní, lögð fram umsókn um lóðina Austurkór 14 frá Eldey eignarhaldsfélagi ehf., kt. 671010-1320. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Eldey eignarhaldsfélagi ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 14 og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Austurkór 16. Umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 18. júní, lögð fram umsókn um lóðina Austurkór 16 frá Eldey eignarhaldsfélagi ehf., kt. 671010-1320. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Eldey eignarhaldsfélagi ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 16 og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Fundargerðir nefnda

06

Félagsmálaráð, dags. 15. júní 2015.

1394. fundur félagsmálaráðs í 9. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

07

Skipulagsnefnd, dags. 22. júní 2015.

1262. fundur skipulagsnefndar í 15. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

08

Fornahvarf 1. Fyrirspurn.

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lögð fram að nýju fyrirspurn Kristjáns Andréssonar varðandi mögulega uppbyggingu við Fornahvarf 1. Samkvæmt Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 er ekki gert ráð fyrir frekari uppbyggingu á lóðinni við Fornarhvarf 1. Skiplagsnefnd hafnaði innsendri fyrirspurn að svo stöddu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

09

Lundur. Lagning holræsis. Framkvæmdaleyfi.

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lagt fram erindi Byggingarfélags Gylfa og Gunnars ehf. þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 200mm holræsislagnar innan Lundarsvæðis, sbr. meðfylgjandi teikningum og verklýsingu verkfræðistofunnar VSB. Skipulagsnefnd samþykkti framkvæmdaleyfið og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

10

Smárinn. Endurskoðun deiliskipulags.

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lögð fram tillaga að breyttu deiluskipulagi Smárabyggðar (suðursvæði Smáralindar). Lögð fram athugasemd frá Nýja Norðurturninum ehf. og einnig lagt fram minnisblað bæjarlögmanns vegna athugasemdarinnar. Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Smárans, vestan Reykjanesbrautar, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

Fundargerðir nefnda

11

Vallargerði 31. Grenndarkynning.

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lagt fram að nýju erindi Teiknistofunnar H.R. ehf. f.h. lóðarhafa, vegna fyrirhugaðra breytinga að Vallargerði 31. Tillagan hefur verið grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 28, 29, 32, 34 og Kópavogsbrautar 68 og er lagt fram skriflegt samþykki fyrrnefndra lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

12

Vatnsendaskóli - Funahvarf 2 - Breytt deiliskipulag.

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs Kópavogs að útfærslu deiliskipulags við Vatnsendaskóla hvað varðar íþróttahús, fyrirkomulag bílastæða, leiksvæða og staðsetningu færanlegra kennslustofa. Einnig lögð fram umsögn umhverfissviðs. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi Funahvarfs 2 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og með vísan í umsögn skipulags- og byggingardeildar, og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

13

Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 19. júní 2015.

147. fundur stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í 7. liðum.

Lagt fram.