Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Málefni Strætó bs.

Málsnúmer: 1502380

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2769. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 18. mars, svar við fyrirspurn frá Birki Jóni Jónssyni á fundi bæjarráðs þann 10. febrúar sl.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2766. fundur

Frá SSH og Strætó, dags. 4. mars, svar við fyrirspurn frá Birki Jóni Jónssyni á fundi bæjarráðs 12. febrúar sl.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2764. fundur

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég óska eftir að gengið verði eftir því hvenær von sé á svörum sem ég bar upp þann 12. febrúar sl. um ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu og málefni Strætó bs. Spurningum var beint til stjórnar Strtæó bs., stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og til bæjarlögmanns.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Eðli málsins samkvæmt, þar sem spurningarnar beinast að stjórnum sem funda einu sinni í mánuði, þá er ekki um óeðlilega langan tíma að ræða.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

04

Bæjarráð - 2762. fundur

Frá Birki Jóni Jónssyni áheyrnafulltrúa, málefni Strætó bs.

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurnir:$line$"Vegna þeirra atburða sem átt hafa sér stað í tengslum við ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu annar staðar en í Kópavogi óska ég eftir svörum við eftirfarandi spurningum:$line$$line$Fyrirspurn til stjórnar Strætó bs.$line$Hver ber ábyrgð á störfum Neyðarstjórnar ferðaþjónustu fatlaðra hjá Strætó, er það stjórn félagsins eða stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)? Er neyðarstjórnin að vinna í umboði og á ábyrgð stjórnar Strætó bs. eða stjórnar SSH?$line$$line$Geta verið tvær stjórnir starfandi yfir Strætó bs.? Er lagagrundvöllur fyrir skipan neyðarstjórnarinnar?$line$$line$Var stjórn Strætó bs. samþykk því að skipuð yrði neyðarstjórn yfir sig vegna ferðaþjónustu fatlaðra og með hvaða hætti var það samþykkt?$line$$line$Hver tók ákvörðun um að hrinda nýju fyrirkomulagi í ferðaþjónustu fatlaðra af stað nú í byrjun árs? Hvers vegna var ekki hlustað á aðvörunarorð notenda þjónustunnar og Mannvits hf. sem vann skýrslu árið 2013 þar sem lagt var til að verkefninu yrði frestað?$line$$line$Stendur til að láta óháðan aðila gera úttekt á aðkomu stjórnar SSH og stjórnar Strætó að ákvörðunum í tengslum við þessa kerfisbreytingu og hvort aðgerðir þessara aðila standist lög og góða stjórnsýslu?$line$$line$Hversu lengi hafa stofnsamþykktir Strætó bs. verið í endurskoðun? Frá hvaða tíma eru stofnsamþykktir sem eru skráðar í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra? Hver hefur haft umsjón með þeirri vinnu? Hvenær stendur til að ljúka þeirri vinnu?$line$$line$Fyrispurn til stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu:$line$Hver ber ábyrgð á störfum Neyðarstjórnar ferðaþjónustu fatlaðra hjá Strætó, er það stjórn félagsins eða stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)? Er neyðarstjórnin að vinna í umboði og á ábyrgð stjórnar Strætó bs. eða stjórnar SHH?$line$$line$Geta verið tvær stjórnir starfandi yfir Strætó bs.? Er lagagrundvöllur fyrir skipan neyðarstjórnarinnar?$line$$line$Hver tók ákvörðun um að hrinda nýju fyrirkomulagi í ferðaþjónustu fatlaðra af stað nú í byrjun árs? Hvers vegna var ekki hlustað á aðvörunarorð notenda þjónustunnar og Mannvits hf. sem vann skýrslu árið 2013 þar sem lagt var til að verkefninu yrði frestað?$line$$line$Stendur til að láta óháðan aðila gera úttekt á aðkomu stjórnar SSH og stjórnar Strætó að ákvörðunum í tengslum við þessa kerfisbreytingu og hvort aðgerðir þessara aðila standist lög og góða stjórnsýslu?$line$$line$Hversu lengi hafa stofnsamþykktir Strætó bs. verið í endurskoðun? Frá hvaða tíma eru stofnsamþykktir sem eru skráðar í fyrirtækjaskrá Ríkisskattsstjóra? Hver hefur haft umsjón með þeirri vinnu? Hvenær stendur til að ljúka þeirri vinnu?$line$$line$Fyrirspurn til bæjarlögmanns:$line$Hver ber ábyrgð á störfum Neyðarstjórnar ferðaþjónustu fatlaðra hjá Strætó, er það stjórn félagsins eða stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)? Er neyðarstjórnin að vinna í umboði og á ábyrgð stjórnar Strætó bs. eða stjórnar SHH?$line$$line$Geta verið tvær stjórnir starfandi yfir Strætó bs. er lagagrundvöllur fyrir skipan neyðarstjórnarinnar, ef svo er hver er lagagrundvöllurinn og hvernig er ábyrgð stjórnarmanna háttað í hvorri stjórn fyrir sig?$line$Birkir Jón Jónsson"