Bæjarráð - 2766. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 6. mars, lagðar fram niðurstöður tilboða í endurbætur á íbúðum fyrir fatlað fólk að Dimmuhvarfi 2, og lagt til að samið verði við lægstbjóðanda Sérverk ehf. um verkið.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að samið verði við Sérverk ehf. um endurbætur á Dimmuhvarfi 2.
Frá lögfræðideild, dags. 9. mars, lagt fram bréf fulltrúa lögfræðideildar vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 7/2015.
Lagt fram.
Frá lögfræðideild, dags. 9. mars, lagt fram bréf fulltrúa lögfræðideildar vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 44/2014.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. mars, lagt fram bréf vegna fyrsta funds verkefnisstjórnar um íþrótta- og félagsaðstöðu GKG, ásamt fundargerð.
Lagt fram.
05
Skálaheiði 2 - íþróttahús HK v/Digranes. Nemendafél. MK. Umsókn um tækifærisleyfi f. árshátíð NMK. Beiðni um umsögn.
Frá lögfræðideild, dags. 10. mars, lögð fram umsókn Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 3. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi, kt. 470576-2199, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 26. mars 2015, frá kl. 23:00-02:00, í íþróttahúsi HK við Digranes, Skálaheiði 2, 200 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Margrét Friðriksdóttir, kt. 200957-2029 og um öryggisgæslu annast Go Security. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.
Kl. 8.22 mætti Birkir Jón Jónsson áheyrnarfulltrúi til fundar.
Vegna fyrirspurnar frá Karen Halldórsdóttur, kynning á sjónarmiðum framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga um hvort hugsanlega verði sveitarfélög að skila málaflokki fatlaðs fólks að nýju til ríkisins.$line$ $line$
Karl Björnsson framkvæmdastjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sat fundinn undir þessum lið.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 9. mars, lagðar fram niðurstöður tilboða í verkið "Tengigata við Vallarkór" og lagt til að gengið verði til samninga við Loftorku Reykjavíkur ehf. um framkvæmd verksins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að ganga til samninga við Loftorku Reykjavíkur ehf. um framkvæmd verksins "Tengigata við Vallarkór".$line$$line$Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 10. mars, lagt fram bréf þar sem mælt er með því að ráðið samþykki að Kópavogsbær verði áfram aðili að rammasamningi Ríkiskaupa.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að Kópavogsbær verði áfram aðili að rammasamningi Ríkiskaupa.$line$$line$Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 26. febrúar, lagt fram bréf með upplýsingum um úthlutanir úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2014.
Bæjarráð vísar erindinu til fjármálastjóra til úrvinnslu.
10
Þingsályktunartillaga um seinkun klukkunnar og bjartari morgna, 338. mál. Beiðni um umsögn.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 26. febrúar, lagt fram bréf þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um seinkun klukkunnar og bjartari morgna, 338. mál.
Lagt fram.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. mars, lögð fram boðun á XXIX. landsþing sambandsins sem verður haldið þann 17. apríl 2015.
Lagt fram.
Sameiginlegur fundur eigenda og stjórnar Strætó bs. frá 6. mars 2015 í 4. liðum.
Lagt fram.
55. fundur svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins í 4. liðum.
Lagt fram.
Frá SSH og Strætó, dags. 4. mars, svar við fyrirspurn frá Birki Jóni Jónssyni á fundi bæjarráðs 12. febrúar sl.
Lagt fram.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Hefur umhverfissvið bæjarins áætlanir uppi um að koma fyrir lokuðu hundagerði innan bæjar?$line$Ólafur Þór Gunnarsson"