Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Málefni sundlauga 2015.

Málsnúmer: 1502449

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2774. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 5. maí, lagt fram erindi vegna opnunar sundlauga Kópavogs á þjóðhátíðardaginn. Íþróttaráð samþykkti á fundi sínum þann 30. apríl tillögu um að hafa sundlaugar bæjarins opnar á 17. júní og leggur til við bæjarráð að í tilefni af 60 ára afmæli Kópavogsbæjar verði boðið upp á opnun beggja sundlauganna á þjóðhátíðardaginn 2015.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um að hafa sundlaugar bæjarins opnar á þjóðhátíðardaginn þann 17. júní.

02

Íþróttaráð - 47. fundur

Á fundi bæjarráðs Kópavogs þann 26. febrúar sl., var óskað eftir því að skoðað yrði "að hafa Sundlaug Kópavogs opna á 17. júní". Deildarstjóri greindi frá því að eftir að hafa fundað með fulltúa 17.júní nefndarinnar, forstöðumönnum sundlauganna, almannatengli bæjarins og fulltrúa Markaðsskrifstofu Kópavogs væri lagt er til að hafa báðar sundlaugarnar opnar á þjóðhátíðardaginn í ár. Þá hafi reynsla af opnun sundlauganna nýliðna páska verið jákvæð bæði hvað varðar aðsókn og tekjur.

Íþróttaráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leiti og leggur til við bæjarráð að í tilefni af 60 ára afmæli Kópavogsbæjar verði boðið upp á opnun beggja sundlauganna á þjóðhátíðardaginn í ár.

03

Bæjarráð - 2764. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 23. febrúar, lagðar fram tillögur forstöðumanna og íþróttadeildar um þjónustutíma sundlauga á hátíðar- og helgidögum (rauðum dögum) árið 2015. $line$Íþróttaráð fól deildarstjóra íþróttadeildar að fylgja málinu eftir við bæjarráð.

Bæjarráð samþykkir tillögu um opnunartíma sundlauga á rauðum dögum árið 2015 með þeirri breytingu að opið verði frá kl. 8. Samþykkt með fjórum atkvæðum Theódóru Þorsteinsdóttur, Margréti Friðriksdóttur, Hjördísi Johnson og Pétri Hrafni Sigurðssyni. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Bæjarráð óskar eftir að skoðað verði að hafa sundlaug Kópavogs opna 17. júní.$line$$line$Deildarstjóri íþróttadeildar sat fundinn undir þessum lið.

04

Íþróttaráð - 45. fundur

Lagt fram yfirlit um aðsókn sundlauganna frá 1999-2014 og tillögur forstöðumanna og íþróttadeildar um þjónustutíma á hátíðar- og helgidögum (rauðum dögum) árið 2015.

Undir þessum lið sátu forstöðumenn beggja sundlauganna fundinn. Rædd voru öryggismál sundlauganna og með hvaða hætti staðið væri að þjálfun og viðbrögðum starfsmanna er neyðartillfelli koma upp í sundlaugarmannvirkjunum.$line$Íþróttaráð leggur áherslu á öryggisþætti í sundlaugunum, sem rædd voru á fundinum. Forstöðumenn sundlauganna og starfsmenn Íþróttadeildarinnar munu áfram vinna að þessum mikilvæga málaflokk.$line$Deildarstjóri Íþróttadeildar kynnti hugmyndir að opnun sundlauganna á rauðum dögum. Lagðir voru fram útreikningar yfir rauða daga á undanförnum árum sem sýnir að umræddir dagar koma ágætlega út fjárhagslega. Íþróttaráð felur deildarstjóra að fylgja málinu eftir við Bæjarráð.