Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um vistvæna þætti Glaðheimasvæðis.

Málsnúmer: 1502714

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 79. fundur

Í samræmi við deiliskipulag Glaðheimasvæði er lögð fram tillaga að niðurgröfnum lausnum í meðhöndlun úrgangs og útfærslu og staðsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla.

Greint frá stöðu mála.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 78. fundur

Í samræmi við deiliskipulag Glaðheimasvæði er lögð fram tillaga að niðurgröfnum lausnum í meðhöndlun úrgangs og útfærslu og staðsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla.

Frestað.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 69. fundur

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 65. fundur

Lagt fram minnisblað varðandi vistvæna þætti Glaðheimasvæðis dags. 12. maí 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 64. fundur

Úr fundargerð 2736 fundar Bæjarráðs 19.2.2015.$line$Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela umhverfis- og samgöngunefnd að vinna tillögu sem hefur það að markmiði að auka vistvæna þætti Glaðheimasvæðis með tilliti til umhverfisvænna þátta svo sem flokkun sorps, aðgengi að tenglum fyrir umhverfisvæna bíla, umferðaröryggis og stígahönnunar.$line$Lögð fram samantekt að tillögum að útfærslu á umhverfisvænum þáttum deiliskipulags Glaðheimasvæðis með tilliti til vistvænna samgangna og meðhöndlun úrgangs.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir aðgerðaráætlun að útfærslu vistvænna þátta deiliskipulags fyrir Glaðheimasvæði sem kynntir verða nefndinni jafnóðum á framkvæmdatímabilinu.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 63. fundur

Úr fundargerð 2736 fundar Bæjarráðs 19.2.2015.$line$Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela umhverfis-og samgöngunefnd að vinna tillögu sem hefur það að markmiði að auka vistvæna þætti Glaðheimasvæðis með tilliti til umhverfisvænna þátta svo sem flokkun sorps, aðgengi að tenglum fyrir umhverfisvæna bíla, umferðaröryggis og stígahönnunar.$line$

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að vinna tillögur með það að markmiði að útfæra vistvæna þætti Glaðheimasvæðis með tilliti til vistvænna samgangna og meðhöndlun úrgangs.

07

Bæjarráð - 2763. fundur

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela umhverfis- og samgöngunefnd að vinna tillögu sem hefur það að markmiði að auka vistvæna þætti Glaðheimasvæðis með tilliti til umhverfisvænna þátta svo sem flokkun sorps, aðgengi að tenglum fyrir umhverfisvæna bíla, umferðaröryggis og stígahönnunar.$line$Greinargerð:$line$Tillagan er í samræmi við markmið nýsamþykkts markmiðs aðalskipulag bæjarins en þar segir: "Stuðla skal að góðri nýtingu lands og landsgæða með umhverfis- og verndarsjónarmið að leiðarljósi. Mótun byggðarinnar skal tryggja sjálfbærni og hagkvæma uppbyggingu, en í því felst m.a. að horft er í ríkari mæli til þéttingar byggðarinnar og þannig er vægi vistvænni samgangna aukið. Áhersla er jafnframt lögð á blandaða byggð með fjölbreytt framboð af húsnæði, þjónustu og útivist ásamt greiðum og öruggum samgöngukerfum. Leitast verður eftir því að við uppbyggingu nýrra hverfa verði horft til sjálfbærra lausna og orkusparandi byggingarefna.$line$Stefna um þróun og mótun byggðar og nýtingu lands og landgæða innan marka bæjarins skal vera til þess að styrkja bæjarbraginn." Bæjarráð vill með umhverfisráðgjöf um vistvæna byggð stuðla að því að koma til móts við að bæjarfélagið mæti kröfum samtímans í umhverfismálum, skapi hverfinu sérstöðu og nálgist markmiðinu um sjálfbæra þróun.