Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 65. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Sigurður M Grétarsson - aðalmaður
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Sæbólsbraut, bílastæði

Frá umhverfisfulltrúa, dags. 22. apríl, lagt fram erindi frá lóðarhöfum að Sæbólsbraut vegna umferðarmála í götunni og lagt til að fjölga bílastæðum á umræddu svæði. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að fjölgun bílastæða í skipulagsferli fyrir sitt leyti og felur umhverfissviði að auka nýtingu bílastæðis við enda Sæbólsbrautar 1-29. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Á 2774 fundi bæjarráðs 7. maí 2015 var erindinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Á 1116 fundi bæjarstjórnar þann 12. maí staðfesti Bæjarstjórn afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar með 11 atkvæðum.

02

Skemmuvegur 4, BYKO Öryggi gangandi vegfarenda

Frá umhverfisfulltrúa, dags. 4. maí, lagt fram erindi frá Smáragarði ehf. um gangbraut við Skemmuveg 2 og 4. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu og vísar kostnaðarliðum til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Á 2774 fundi bæjarráðs 7. maí 2015 var erindinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Á 1116 fundi bæjarstjórnar þann 12. maí staðfesti Bæjarstjórn afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar með 11 atkvæðum.

03

Höfuðborgarstofa - Visit Reykjavik

Davíð Samúlesson deildarstjóri hjá Höfuðborgarstofu(Visit Reykjavík) kynnir verkefnið Reykjavík loves cycling.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Davíð Samúelssyni deildarstjóra hjá Höfuðborgarstofu fyrir kynninguna.

04

Birkihvammur 21. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Hjartar Smára V. Garðarssonar varðandi Birkihvamm 21 dags. 31. mars 2015. $line$Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Vífils Magnússonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 25.9.2014. Í erindi er óskað eftir að byggja 45m2 bílskúr á norðausturhorni lóðarinnar ásamt 90 cm háum stoðvegg á lóðamörkum til austurs. Bílskúrinn verður um 3,2 m á hæð sbr. uppdráttum dags. 25.9.2014.$line$Á 1257 fundi skipulagsnefndar 20. mars 2015 var erindinu frestað. Vísað til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar með tilliti til umferðaröryggis í götunni.$line$Lögð fram umsögn dags 18.5.2015.

Frestað.

05

Kópavogsleira. Fossvogsleira. Umferðarmál á Sæbólsbraut

Lagt fram erindi Birgis Ómars Haraldssonar varðandi Kópavogsleiru, Fossvogsleiru og umferðarmál á Sæbólsbraut dags. 15. mars 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að setja upp viðeigandi merkingar við Kópavogsleiru og Fossvogsleiru og vísar síðar hluta erindisins til yfirstandandi vinnu við umferðarskipulag á Kársnesi.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að hafa samráð við Náttúrufræðistofu Kópavogs með að skoða árstímabundið bann við umferð gæludýra um svæðin og skila til nefndarinnar.

06

Umhverfisviðurkenningar 2015

Lagt fram minnisblað varðandi umhverfisviðurkenningar 2015 dags. 12. maí 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.

07

Bláfáninn - Fossvogshöfn

Lagt fram minnisblað varðandi afhendingu Bláfána 2015 dags. 12. maí 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.

08

Evrópsk samgönguvika 2015

Lagt fram kynningarefni varðandi evrópska samgönguviku 2015 ásamt minnisblaði dags. 12. maí 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.

09

Þríhnúkur.

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

10

Hverfisskipulag

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

11

Tillaga um að auka vistvæna þætti Glaðheimasvæðis.

Lagt fram minnisblað varðandi vistvæna þætti Glaðheimasvæðis dags. 12. maí 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur og felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram í verkefninu.

12

Dalsmári 1 - Smáraskóli - Umferðamál

Kynnt teikning af fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu í samræmi við samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar 22. janúar 2015.

Lagt fram og kynnt.

13

Brú yfir Fífuhvammsveg - Lýsing

Kynnt teikning af lýsingu í samræmi við samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar 5. janúar 2015.

Lagt fram og kynnt.