Fannborg 5, Pálmi Pálmason. Umsókn um rekstrarleyfi fyrir íbúðir í fl. II. Beiðni um umsögn.
Málsnúmer: 1503050
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2765. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 3. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24. febrúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Pálma Pálmasonar, kt. 280552-3729, um nýtt rekstrarleyfi fyrir íbúð í flokki II, að Fannborg 5, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10 gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. S
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fjórum atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. Samþykkir voru Theódóra Þorsteinsdóttir, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir og Pétur Hrafn Sigurðsson. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.