Bæjarráð - 2765. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir
- Pétur Hrafn Sigurðsson
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Margrét Friðriksdóttir - varafulltrúi
- Guðrún Jónína Guðjónsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
01
Bæjarlind 6, SPOT. Nemendafél. FB. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til að halda árshátíð NFB.
Frá lögfræðideild, dags. 3. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 25. febrúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn nemendafélags Fjölbrautarskólans í Breiðholti, kt. 590182-1099, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 5. mars 2015, frá 22:00-02:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Ábyrgðarmaður er Magnús Ingvarsson, kt. 150860-4669 og um öryggisgæslu annast Go Security. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10 gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.
02
Fannborg 5, Pálmi Pálmason. Umsókn um rekstrarleyfi fyrir íbúðir í fl. II. Beiðni um umsögn.
Frá lögfræðideild, dags. 3. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 24. febrúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Pálma Pálmasonar, kt. 280552-3729, um nýtt rekstrarleyfi fyrir íbúð í flokki II, að Fannborg 5, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10 gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. S
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fjórum atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. Samþykkir voru Theódóra Þorsteinsdóttir, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir og Pétur Hrafn Sigurðsson. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. mars, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir samþykki fyrir breyttu fyrirkomulagi vegna garðlanda og leigugjalda 2015. Lagt til að fyrirkomulag garðlanda 2015 verði eins og á síðasta ári, að því breyttu að komið verði á samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands um fræðslu á matjurtaræktun. Einnig lagt til að leigugjald hækki um kr. 300,- frá síðasta ári, verði kr. 4.500,- árið 2015 fyrir 25 fm garðland. $line$
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum breytt fyrirkomulag garðlanda og leigugjalda 2015 og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. mars, óskað eftir heimild ráðsins fyrir opnu útboði á grasslætti í bænum. Fyrirkomulag útboðsins og verklag yrði með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila að farið verði í opið útboð á grasslætti í bænum.
Frá lögfræðideild, dags. 3. mars, lagt fram bréf fulltrúa lögfræðideildar vegna úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 16/2010.
Lagt fram.
Kl. 8.20 mætti Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, til fundar.
Frá svæðisskipulagsstjóra SSH, dags. 2. mars, lögð fram til samþykktar endurskoðuð samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla og afmörkun vatnsverndarsvæða á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
146. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 8. liðum.
Lagt fram.
1387. fundur félagsmálaráðs í 6. liðum.
Lagt fram.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson og Pétur Hrafn Sigurðsson taka undir eftirfarandi bókun í lið 2. í fundargerðinni:$line$""Undirrituð benda á að samræma þurfi rétt fólks til fjárhagsaðstoðar á landsvísu, þannig að íbúar landsins njóti jafnræðis hvað þessi grundvallaréttindi varðar, óháð búsetu.$line$ S. Kristín Sævarsdóttir, Arnþór Sigurðsson, Rannveig Bjarnadóttir, Vilhjálmur Einarsson""$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 8.55. Fundi var fram haldið kl. 9.05.$line$$line$Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Það er á ábyrgð sveitafélaga að veita íbúum sínum fjárhagsaðstoð og semja reglur um úthlutun slíkrar aðstoðar. Því er mikilvægt að ákvörðurnarréttur sveitafélaga um aðstoð hverju sinni sé ekki af þeim tekin og hljóta sveitastjórnarmenn að treysta sér til þess að standa undir þeirri ábyrgð.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir"
198. fundur heilbrigðisnefndar í 44. liðum.
Lagt fram.
83. fundur skólanefndar í 5. liðum.
Lagt fram.
347. fundur stjórnar Sorpu í 4. liðum.
Lagt fram.
213. fundur stjórnar Strætó bs. í 8. liðum.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 2. mars, svar við fyrirspurn frá Birki Jóni Jónssyni á fundi bæjarráðs þann 19. febrúar sl.
Lagt fram.
14
Virkjum hæfileikana - alla hæfileikana! Samstarfsverkefni varðandi atvinnuleitendur með skerta starfsgetu.
Erindi í tengslum við samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar, Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálpar, þar sem farið er þess á leit við Kópavogsbæ að ráða atvinnuleitendur með skerta starfsgetu í störf.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.
Karen Halldórsdóttir óskar eftir kynningu á sjónarmiðum framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga um að hugsanlega verði sveitarfélög að skila málaflokki fatlaðs fólks að nýju til ríkisins.