Bæjarlind 6, SPOT. Nemendafél. FB. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til að halda árshátíð NFB.
Málsnúmer: 1503055
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2765. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 3. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 25. febrúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn nemendafélags Fjölbrautarskólans í Breiðholti, kt. 590182-1099, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 5. mars 2015, frá 22:00-02:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Ábyrgðarmaður er Magnús Ingvarsson, kt. 150860-4669 og um öryggisgæslu annast Go Security. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10 gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.