Skálaheiði 2 - íþróttahús HK v/Digranes. Nemendafél. MK. Umsókn um tækifærisleyfi f. árshátíð NMK. Beiðni um umsögn.
Málsnúmer: 1503076
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2766. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 10. mars, lögð fram umsókn Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 3. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi, kt. 470576-2199, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 26. mars 2015, frá kl. 23:00-02:00, í íþróttahúsi HK við Digranes, Skálaheiði 2, 200 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Margrét Friðriksdóttir, kt. 200957-2029 og um öryggisgæslu annast Go Security. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.