Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ungmennaráð-Kosning í embætti

Málsnúmer: 1503471

Ferill máls

01

Ungmennaráð - 4. fundur

Rætt um kosningu í embætti ungmennaráðs. Skv erindisbréfi ungmennaráðs er ráðinu skylt að skipa formann, varaformann og ritara á fyrsta fundi sínum.

Í formann bjóða sig fram Katrín Rós Þrastardóttir, Halldís Sigurðardóttir og Kjartan Sveinn Guðmundsson.

Framboðsefni kynntu sig og leynileg kosning fór fram.

Þrír voru í framboði til formanns og ákveðið af öllum ráðsmönnum að sá frambjóðandi sem hlyti flest atkvæði yrði formaður. Halldís Sigurðardóttir var kosin formaður.

Unnur María Agnarsdóttir var ein í framboði varaformanns og var hún kosin með öllum greiddum atkvæðum.

Davíð Fannar Sigurðsson var einn í framboði ritara og var hann kosinn með öllum greiddum atkvæðum.

02

Ungmennaráð - 3. fundur

Kosning formanns, varaformanns og ritara.

Elín Perla Stefánsdóttir var kjörin formaður, Íris Lorange Káradóttir

varaformaður og Oddur Örn Ólafsson ritari.

03

Ungmennaráð - 2. fundur

Í formann bjóða sig fram: Huginn Goði Kolbeinsson og Marteinn Atli Gunnarsson.$line$Framboðsefni kynntu sig og leynileg kosning fór fram.

Tveir voru í framboði til formanns, ákveðið af öllum ráðsmönnum að sá frambjóðandi sem hlyti fleiri atkvæði yrði formaður og hinn varaformaður. Marteinn Atli Gunnarsson var kosinn formaður og Huginn Goði Kolbeinsson var kosinn varaformaður. Birgitta Sól Eggertsdóttir var ein í framboði til ritara og var hún kosin með öllum greiddum atkvæðum.

04

Ungmennaráð - 1. fundur

Rætt um kosningu í embætti Ungmennaráðs

Ákveðið var að fresta kosningu fram á næsta fund.