Ungmennaráð - 2. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elva Arinbjarnar - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Tekla Kristjánsdóttir - varafulltrúi
- Bjarki Geir Grétarsson - aðalfulltrúi
- Selma Dagmar Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Halldór Ísak Ólafsson - aðalfulltrúi
- Elín Perla Stefánsdóttir - varafulltrúi
- Marteinn Atli Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Sigþór Óli Árnason - aðalfulltrúi
- Berglind Ýr Benediktsdóttir - aðalfulltrúi
- Viktor Einar Vilhelmsson - aðalfulltrúi
- Huginn Goði Kolbeinsson - aðalfulltrúi
- Birgitta Sól Eggertsdóttir - aðalfulltrúi
- Elín Ylfa Viðarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigurjón Ágústsson - varafulltrúi
- Hlín Guðmundsdóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Birgitta Sól Eggertsdóttir
Dagskrá fundar
Í formann bjóða sig fram: Huginn Goði Kolbeinsson og Marteinn Atli Gunnarsson.$line$Framboðsefni kynntu sig og leynileg kosning fór fram.
Tveir voru í framboði til formanns, ákveðið af öllum ráðsmönnum að sá frambjóðandi sem hlyti fleiri atkvæði yrði formaður og hinn varaformaður. Marteinn Atli Gunnarsson var kosinn formaður og Huginn Goði Kolbeinsson var kosinn varaformaður. Birgitta Sól Eggertsdóttir var ein í framboði til ritara og var hún kosin með öllum greiddum atkvæðum.
Erindi frá skipulagsnefnd Kópavogs lagt fyrir.
Ungmennaráð þiggur boð skipulagsnefndar á fund og ætlar að senda nokkra fulltrúa.$line$Ráðið óskar eftir frekari upplýsingum um efni fundarins og fundartíma.
Halldór Ísal Ólafsson vék af fundi og inn kom Tekla Kristjánsdóttir.
Ungmennaráð Kópavogs ákvað á síðasta vinnufundi ráðsins að ræða um samgöngumál á næsta formlega fundi ráðsins.
Umræða um skipulag strætókerfis fyrir ungt fólk í Kópavogi. Einnig rætt um skipulag skólaaksturs og öryggi í rútum.$line$$line$Ungmennaráð Kópavogs óskar eftir fulltrúa frá Strætó BS á næsta formlegan fund. $line$Ungmennaráð Kópavogs hvetur rútufyrirtækin að fara betur yfir rúturnar og gæta að stundvísi.
Tekla Kristjánsdóttir vék af fundi og inn kom Halldór Ísak Ólafsson.
Ungmennaráð Kópavogs ákvað á síðasta vinnufundi ráðsins að ræða um sumarvinnu fyrir unglinga og ungt fólk í Kópavogi á næsta formlega fundi ráðsins.
Umræða um vinnutíma, fjölbreyttari störf fyrir yngri hópinn, betri útbúnað og verkfæri. Frekari umræðu frestað fram að næsta vinnufundi ungmennaráðs.