Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gulaþing 25. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1503554

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1118. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 2. júní, lagt fram að nýju erindi Púkk arkitekta f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25, þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og vísaði erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2777. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 2. júní, lagt fram að nýju erindi Púkk arkitekta f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25, þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1260. fundur

Lagt fram að nýju erindi Púkk arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 19.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 18.5.2015 var málinu frestað. Lögð fram breytt tillaga þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir dags. 4.5.2015.$line$$line$Greint frá samráði við þá aðila sem gerðu athugasemd við kynnta tillögu.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi dags. 4.5.2015 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1259. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Púkk arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 19.3.2015 að breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25. Á fundi skipulagsnefndar 23.3.2015 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 11, 13, 15, 17, 18, 19, 21, 23, 64, 66, 68 og 70 ásamt lóðarhöfum Dalaþings 30. Kynningu lauk 12. maí 2015. Athugasemd barst frá Eiríki Braga Jensson og Aðalheiði Þorsteinsdóttur, Dalaþingi 18. dags. 12.5.2015.

Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.

05

Skipulagsnefnd - 1256. fundur

Lögð fram tillaga Púkk arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 19.3.2015 að breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25. Í breytingunni felst að byggingarreitur breytist og færist til á lóð. Reist verður íbúðarhús á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr á einni hæð á norðvesturhluta lóðarinnar og vinnustofu á einni hæð á suðausturhluta lóðarinnar sbr. uppdrætti dags. 23.3.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Gulaþings 11, 13, 15, 17, 18, 19, 21, 23, 64, 66, 68 og 70 ásamt lóðarhöfum Dalaþings 30.