Ályktun frá aðalfundi knattspyrnudeildar Breiðabliks, mars 2015
Málsnúmer: 1505062
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 48. fundur
Á 47. fundi Íþróttaráðs sem haldinn var þann 30. apríl sl. bókaði Íþróttaráð varðandi ályktun frá aðalfundar knattspyrnudeildar Breiðabliks, sbr. 12 liður á dagskrá fundarins. Samkvæmt 50. lið 48. fundar íþróttaráðs hefur íþróttaráð skipað starfshóp til að vinna að tillögu að framtíðarskipulagi knattspyrnumála í Kópavogi. Er starfshópnum ætlað að skila tillögu til íþróttaráðs í október á þessu ári. Íþróttaráð mun taka afstöðu til bókunar aðalfundar knattspyrnudeildar Breiðabliks þegar framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi liggur fyrir.$line$Óháð framangreindu telur Íþróttaráð að erindi knattspyrnudeildar Breiðabliks kalli á afstöðu aðalstjórnar Breiðabliks. Felur Íþróttaráð íþróttafulltrúa að kalla eftir afstöðu aðalstjórnar varðandi erindi knattspyrnudeildarinnar, þá m.a. sérstaklega með tillit til sjónarmiða frjálsíþróttadeildar félagsins.
02
Bæjarráð - 2774. fundur
Lögð fram ályktun frá aðalfundi knattspyrnudeildar Breiðabliks sem haldinn var í mars 2015, þar sem farið er fram á við bæjarstjórn Kópavogs að hefja undirbúning að því að bæta vetrar- og kneppnisaðstöðu knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til úrvinnslu.