Íþróttaráð - 48. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Lovísa Ólafsdóttir - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Jón Ingi Ragnarsson - varafulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Lögð fram samantekt íþróttadeildar með óskum íþróttafélaganna um afnot af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar frá hausti 2015 og út veturinn 2016.
Íþróttaráð fagnar því hve snemma upplýsingar um æfingatöflur fyrir veturinn 2015 - 2016 liggja fyrir. Íþróttafulltrúa falið að vinna málið áfram. Ákvarðanir verða teknar á 49. fundi Íþróttaráðs.
Kynntar hugmyndir íþróttadeildar um hönnun og útlit viðurkenningarskjala.
Samþykkt að vinna málið áfram á grundvelli þeirra tillagna sem lagðar voru fram á fundinum.
Lagt fram erindi frá HK, dags. 28.maí sl., þar sem óskað er eftir, f.h. blakdeildar félagsins, endurbótum á Strandblaksaðstöðu Kópavogsbæjar við Fagralund þannig að nýting vallanna verði sem best í náinni framtíð.
Íþróttafulltrúa falið að óskað er eftir frekari upplýsingum vegna erindisins og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.
Lagt fram erindi frá sunddeild Breiðabliks, dags. 23.apríl sl., þar sem óskað er eftir aðstöðu fyrir þrjú sundmót á tímabilinu 2015-2016. Meistaramót UMSK í október, Garpamót í nóvember og Vormót í maí 2016
Íþróttaráð samþykkir erindið og felur starfsmönnum úrvinnslu málsins.
Á 47. fundi Íþróttaráðs sem haldinn var þann 30. apríl sl. bókaði Íþróttaráð varðandi ályktun frá aðalfundar knattspyrnudeildar Breiðabliks, sbr. 12 liður á dagskrá fundarins. Samkvæmt 50. lið 48. fundar íþróttaráðs hefur íþróttaráð skipað starfshóp til að vinna að tillögu að framtíðarskipulagi knattspyrnumála í Kópavogi. Er starfshópnum ætlað að skila tillögu til íþróttaráðs í október á þessu ári. Íþróttaráð mun taka afstöðu til bókunar aðalfundar knattspyrnudeildar Breiðabliks þegar framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi liggur fyrir.$line$Óháð framangreindu telur Íþróttaráð að erindi knattspyrnudeildar Breiðabliks kalli á afstöðu aðalstjórnar Breiðabliks. Felur Íþróttaráð íþróttafulltrúa að kalla eftir afstöðu aðalstjórnar varðandi erindi knattspyrnudeildarinnar, þá m.a. sérstaklega með tillit til sjónarmiða frjálsíþróttadeildar félagsins.
Lögð fram yfirlitstafla yfir Sérstyrki íþróttaráðs í júní 2015 ásamt tillögum íþróttadeildar að úthlutun sérstyrkja íþróttaráðs í þessari úthlutun.
Íþróttaráð samþykkir framlagðar tillögur samkvæmt neðanskráðu.
Lagt fram erindi frá HK, dags. 28.apríl sl., þar sem óskað er eftir styrk f.h. Taekwandodeildarinnar til að byggja upp aðstöðu í formi tækja- og íþróttabúnaðar.
Íþróttaráð synjar erindinu að svo komnu máli.
Lagt fram erindi frá HK, dags. 28.apríl sl., þar sem óskað er eftir styrk f.h. blakdeildarinnar, til að koma upp aðstöðu fyrir upptökuvél og fréttaritara á vegg í íþróttahúsinu Fagralundi til útsendinga frá blakleikjum deildarinnar.
Íþróttaráð synjar erindinu.
Lagt fram erindi frá HK, dags. 28.apríl sl., þar sem óskað er eftir styrk f.h. dansdeildarinnar til þátttöku 2ja dómara í dómaranámskeiði í Stuttgart í ágúst nk.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 20.000 .
Lagt fram erindi frá HK, dags. 28.apríl sl., þar sem óskað er eftir styrk f.h. blakdeildarinnar, til að kaupa Smass æfingatæki frá AcuSpike til að æfa smass og fl.
Íþróttaráð synjar erindinu.
Lagt fram erindi frá Dansíþróttafélagi Kópavogs, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk til að búa til kynningarmyndband til að hvetja drengi til þátttöku í dansi.
Íþróttaráð synjar erindinu.
Lagt fram erindi frá Dansíþróttafélagi Kópavogs, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk til endurbóta á búnings- og salernisaðstöðu drengja í húsnæði félagsins að Auðbrekku 17.
Íþróttaráð synjar erindinu sem sérstyrk. Íþróttaráð telur hins vegar mikilvægt að koma til móts við félagið við að bæta búnings- og salernisaðstöðu iðkenda þess. Íþróttaráð samþykkir að veita DÍK framlag að upphæð kr. 400 þús. sem tekið verði á tækjasjóði íþróttaráðs.
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk vegna þjálfara og dómaranámskeiða á vegum FSÍ.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 340.000
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk vegna þróunarverkefnis um útbreiðslu áhaldafimleika á landsvísu.
Íþróttaráð synjar erindinu
Lagt fram erindi frá Gerplu, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk vegna komu 2ja erlendra þjálfara. koma vegna námskeiðs í áhaldafimleikum.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 30.000
Lagt fram erindi frá Knattspyrnudeild Breiðabliks, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk til vegna komu unglingaþjálfara AZ Alkmaar til að halda námskeið fyrir þjálfara deildarinnar í ágúst í sumar.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr.15.000.
Lagt fram erindi frá Knattspyrnudeild Breiðabliks, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk til að senda 5 þjálfara 4.fl. karla og kvenna til Danmerkur í sumar.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr.75.000.
Lagt fram erindi frá Knattspyrnudeild Breiðabliks, dags. 30. apríl sl., þar sem sótt er um styrk til að halda röð fyrirlestra fyrir foreldra iðkenda í 4. fl. og eldri.
Íþróttaráð synjar erindinu
Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, dags. 27. apríl sl., þar sem sótt er um styrk vegna PGA-þjálfaranámskeiða sem 2 sóttu til Danmerkur í febrúar sl.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr.30.000.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr.8.000.
Lögð fram tillaga íþróttadeildar að úthlutun iðkendastyrkja/starfsstyrkja íþróttaráðs fyrir árið 2015.
Íþróttaráð samþykkir framlagða tillögu samkvæmt neðanskráðu.
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.612.150
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.441.210
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.1.055.670
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.4.915.680
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.69.300
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.475.860
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.413.490
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.316.470
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.161.700
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.5.225.220
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.408.870
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.212.520
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.212.520
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.94.710
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.2.335.410
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.2.402.400
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.168.630
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.540.540
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.284.130
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.731.115
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.1.390.620
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.34.650
Íþróttaráð samþykkir að veita deildinni styrk að upphæð kr.32.340
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.60.060
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.43.890
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.124.740
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.462.000
Íþróttaráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr.136.290
Íþróttaráði hefur fengið erindisbréf. Í því kemur fram að stefnumótun um íþróttir skuli fylgt eftir með gerð aðgerðaráætlana (2. tl. 2. mgr. 9. gr.). Samþykkt að skipa starfshóp til að vinna að aðgerðaráætlun um framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi. Samþykkt að skipa Jón Finnbogason, Hlín Bjarnadóttur og Jón Júlíusson í starfshópinn. Kallað verður eftir 3 aðilum frá HK og 3 aðilum frá Breiðablik til þess að taka þátt í fundum nefndarinnar við gagnaöflun og undirbúningsvinnu, en þeir verða þó ekki hluti af starfshópnum sjálfum, sem skal skila niðurstöðu sinni til ÍTK. Starfshópurinn fær 4 mánuði til að ljúka sínu starfi. Formaður Íþróttaráðs stýrir starfi starfshópsins.