Nordic Built Cities. Hugmyndasamkeppni. Kársnes
Málsnúmer: 1505366
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2846. fundur
Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð ítrekar ósk Péturs Hrafns Sigurðssonar bæjarfulltrúa, um að fá arkitekta er stóðu að vinningstillögunni um Kársnes, á fund bæjarráðs.
Ása Richardsdóttir"
02
Skipulagsnefnd - 1284. fundur
Undir liðnum önnur mál leggur Ása Richardsdóttir til að skipulagsnefnd samþykki að halda rýnifund með þátttakendum úr fyrsta og öðru þrepi samkeppninnar Kársneshöfn sjálfbær líftaug. Dómnefnd keppninnar verði falið að undirbúa fundinn í samræmi við hugmyndafræði Arkitektafélags Íslands um rýnifundi.
Skipulagsnefnd hafnar tillögu Ásu Richardsdóttur með 4 atkvæðum Theódóru Þorsteinsdóttur, Sigríðar Kristjánsdóttur, Andrésar Péturssonar og Júlíusar Hafstein og hjásetu Guðmundar Geirdal og Kristins Dags Gissurarsonar. Ása Richardsdóttir greiddi atkvæði með tillögunni.
Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
„Það er mjög miður að ítrekaðar beiðnir um rýnifund allra keppenda í samkeppni Kársneshöfn- sjálfbær líftaug, séu hundsaðar. Slíkur fundur yrði öllum aðilum til góðs, Kópavogsbæ, fagfólki og nefndarfólki hans, keppendum og íbúum bæjarins. Það er von mín að nefndin endurskoði afstöðu sína.“
Bókun frá Theódóru Þorsteinsdóttur, Sigríði Kristjánsdóttur, Andrési Péturssyni, Júlíusi Hafstein, Guðmundi Geirdal og Kristni Degi Gissurarsyni: „Arkitektafélaginu sem og öðrum fagfélögum er frjálst að standa fyrir rýnifundi um Kársnessamkeppnina. Arkitektafélagið er ekki samstarfsfélagi í Nordic Built keppninni en það kemur ekki í veg fyrir að það haldi rýnifund um það sem því hentar án þess að Kópavogsbær komi þar að, öll gögn eru opin í Nordic Built og við gætum hjálpast að við að stilla upp.“
Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
„Það er eðlilegt Kópavogsbær eigi frumkvæði að rýnifundi um eigin keppni.“
03
Skipulagsnefnd - 1278. fundur
Greint frá úrslitum úr Nordic Built Cities Challange. Niðurstaða dómnefndar sem var tilkynnt 16. júní 2016 er sú að Spot on Kársnes skyldi hljóta verðlaun fyrir annað þrep keppninar. Höfundar tillögunar eru Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt, Anders Egebjerg Terp, landslagsarkitekt og Gunnlaugur Johnson, arkitekt.
Dagný Bjarnadóttir gerði grein fyrir tillögunni.
04
Skipulagsnefnd - 1275. fundur
Greint frá stöðu mála.
Kynnt.
05
Skipulagsnefnd - 1272. fundur
Farið yfir stöðu mála.$line$$line$Gögn má finna á heimasíðu bæjarins:$line$http://www.kopavogur.is/nbcc
Kynnt.
06
Skipulagsnefnd - 1266. fundur
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Kynnt.
07
Skipulagsnefnd - 1263. fundur
Greint frá stöðu mála.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.
08
Bæjarráð - 2784. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 6. ágúst, lagt fram erindi þar óskað er eftir að bæjarráð veiti heimild til að undirrita samkomulag um þátttöku í nýsköpunarsamkeppninni Nordic Built City Challenge. Einnig lögð fram drög að verksamningi og ráðningarsamningi við Alta um verkefnastjórnun.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita sviðsstjóra umhverfissviðs heimild til að undirrita samkomulag um þátttöku í nýsköpunarsamkeppninni Nordic Built City Challenge.$line$Bæjarráð samþykkir jafnframt með fjórum atkvæðum verk- og ráðningarsamning við Alta um verkefnastjórnun.$line$$line$Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
09
Skipulagsnefnd - 1259. fundur
http://www.skipulagsstofnun.is/skipulagsstofnun/frettir/nr/1134$line$$line$http://nordicbuiltcities.org/