Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íþróttafélag Stál-Úlfs-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016.

Málsnúmer: 1505592

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 50. fundur

Lagðar fram upplýsingar frá HK og Breiðablik um lausa æfingatíma í Smáranum og Kórnum

Íþróttaráð samþykkir að úthluta Körfuknattleiksdeild Stálúlfs keppnistímum í Fagralundi eða Smáranum á sunnudögum á komandi keppnistímabili. Nánari útfærsla tíma skal unnin af íþróttadeild.

02

Íþróttaráð - 49. fundur

Lagðar fram beiðnir félagsins:$line$Knattspyrnudeild- sækir um 3 tíma á gervigrasi í Fagralundi (1,5 tíma mánudag og fimmtudag). Auk þessa sækir félagið um tíma fyrir Futsal 2 x 1,5 tíma í Digranesi.$line$Körfuknattleiksdeild- sækir alls um 4,5 tíma fyrir æfingar í Kársnes og Lindaskóla auk keppnistíma$line$Börn af erlendum uppruna - sækir alls um 3 tíma fyrir æfingar í Kársnes/Linda og Kórnum /Fífunni

Knattspyrnudeild- hægt er að verða við óskum deildarinnar um afgangstíma (eftir kl. 21) í Fagralundi að vetri og tíma á gervigrasi yfir sumartíma eins og verið hefur. Félaginu stendur til boða að leigja tíma í Kórnum og Fífunni eins og öllum öðrum. Skoða þarf möguleika á einum tíma fyrir Futsal í Digranesi á sunnudögum.$line$$line$Körfuknattleiksdeild - Félagið fær alls til ráðstöfunar 4 klst í íþróttahúsi Kársnes. Íþróttaráð felur íþróttadeild að kanna möguleika varðandi keppnistíma fyrir deildina í þeim mannvirkjum sem uppfylla þau skilyrði sem á þarf að halda. $line$$line$Börn af erlendum uppruna- Félagið fær alls til ráðstöfunar 4 klst í íþróttahúsi Kársnes.