Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 49. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
  • Jón Finnbogason - formaður
  • Sigursteinn Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Helgi Hrafn Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
  • Árni Þorsteinsson - varafulltrúi

Ritari

  • Jón Júlíusson

Dagskrá fundar

01

Æfingatöflur fyrir veturinn 2015-2016

Lögð fram samantekt á þeim umsóknum sem borist hafa ráðinu frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur. Í samantektinni koma fram óskir deilda sem inn voru sendar og tillögur íþróttadeildar að afgreiðslu þeirra.$line$Jafnframt lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar sem byggja á töflum frá síðastliðnu ári og á þeim tillögum sem fyrir liggja.

Íþróttaráð er nú í fyrsta skipti að úthluta æfingaaðstöðu eftir nýsamþykktum reglum um afnot í íþróttamannvirkkjum bæjarins. Við yfirferð umsóknanna kom í ljós að lagfæra orðalag í 2. grein reglnanna um styrkhæfi. Lagt er til að bæta "eða Íslandsmótum í" inn í grein 2.c. $line$Eftir breytingu hljóðar grein svo; c) Meistaraflokka í hóp- og einstaklingsíþróttum sem keppa í efstu deild eða Íslandsmótum í viðkomandi íþróttagreinum.$line$Íþróttaráð lýsir ánægju sinni með hversu snemma hægt er að afgreiða tímatöflur íþróttamannvirkja bæjarins og jafnframt hversu vel gekk að mæta óskum íþróttafélaganna.$line$Hins vegar telur Íþróttaráð að í sumum tilvikum hafi skort á að fullnægjandi gögn hafi borist frá íþróttafélögunum í samræmi við þá forskrift sem fram kemur í úthlutunarreglunum. Íþróttaráð felur íþróttadeild að fylgja því eftir að við næstu úthlutun verði fullnægjandi upplýsingagjöf í samræmi við úthlutunarreglurnar.

02

TKD-Breiðablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fyrir beiðni TKD deild Breiðabliks um óbreytta tíma í Lindaskóla á næsta vetri.

Íþróttaráð getur orðið við óskum TKD deilar um óbreytta tíma í Lindaskóla

03

Körfuknattleiksdeild Breiðablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni körfuknattleiksdeildar Breiðabliks, þar sem óskað er eftir 8 tímum í íþróttahúsi Kársnes, 11,5 tímum í Lindaskóla og 3 tímum í Fagralundi á næsta vetri.

Íþróttaráð getur orðið við óskum deildarinnar varðandi tíma í Kársnesi og Lindaskóla, en mælir með því að deildin fái 1 tíma í Fagralundi fyrir byrjendaflokk.

04

Frjálsíþróttad. Breiðablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks, þar sem óskað er eftir 2 tímum í Fagralundi fyrir íþróttaskóla. Auk þess er deildin með tíma í Smáranum og Fífunni. (Kópavogsbær hefur styrkt deildina um kr. 300.000 fyrir leigu í Laugardalshöll).

Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk deildarinnar um tíma í Fagralundi.

05

Skíðadeild Breiðablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni skíðadeildar Breiðabliks um 1.klukkustund í stóra salnum í Digranesi milli kl. 18-19 á virkum degi.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum deildarinnar um tíma í stóra salnum en deildinni er boðið að nýta Vestursalinn undir æfingar deildarinnar líkt og á síðasta ári.

06

Skákdeild Breiðabliks-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni frá skákdeild Breiðabliks um að æfingar fara fram í stúkunni á Kópavogsvelli .

Íþróttaráð telur að þar sem æfingarnar fara fram í stúkunni á Kópavogsvelli, hafi þær ekki áhrif á úthlutun.

07

Breiðablik-Umsókn um afnot af sundlaugum Kópavogs fyrir æfingar deildarinnar.

Beiðni frá sunddeild Breiðabliks lögð fram, þar sem deildin sækir um tíma í Sundlaug Kópavogs (innilaug, útilaug og barnalaug inni) og í Salalaug (útilaug og innilaug).

Íþróttaráð getur ekki samþykkt beiðni um fjölgun tíma/brauta. Vísað til forstöðumanna sundlauganna til frekari úrvinnslu

08

Gerpla-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni félagsins um að fá aðgang að Lindaskóla 4 daga í viku 4-5 tíma í senn.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum félagsins, en Gerpla fær úthlutað 2 dögum í Lindaskóla 5 tíma í senn ? alls 10 tímum.

09

HK-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lagðar fram sameiginlegar beiðnir frá deildum félagsins, þar sem óskað er eftir:$line$$line$Blakdeild HK- 4 tímum í Íþróttahúsi Kópavogsskóla eins og undanfarin ár.$line$Handknattleiksdeild HK- 41 klukkustund í stóra salnum í Digranesi og 6 tímum í íþróttahúsi Kársnes.$line$$line$Bandýdeild - 16 klukkustundum í stóra salnum í Digranesi.

Íþróttaráð hefur samþykkt eftirfarandi varðandi þessar þrjár deildir:$line$$line$Blakdeild HK- íþróttaráð getur orðið við óskum deildarinnar$line$$line$Handknattleiksdeild HK-Hægt að verða við óskum deildarinnar um tíma í Kársnesi. Ekki er hægt að verða við óskum deildarinnar um tímafjölda í Digranesi en lagt til að félagið hafi til ráðstöfunar tíma í stóra salnum á virkum dögum eftir að skóla lýkur á daginn og til kl. 21:00 á kvöldin. Deildin fær einnig úthlutað tímum um helgar undir æfingar og leiki.$line$$line$Bandýdeild HK- Ekki er hægt að verða við óskum deildarinnar um tímafjölda í Digranesi en lagt til að félagið hafi til ráðstöfunar tíma í stóra salnum á virkum dögum eftir að skóla lýkur á daginn og til kl. 21:00 á kvöldin. Deildin fær einnig úthlutað tímum um helgar undir æfingar og leiki.

10

GKG - Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni félagsins um afnot af íþróttasal 2 x í viku.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum félagsins, nema ef afgangstímar verði til ráðstöfunar

11

Hvönn-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram tímatafla félagsins fyrir danssalnum í Kórnum.

Samþykkt.

12

DÍK-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016.

Lögð fram beiðni félagsins, þar sem óskað er eftir 6,5 tímum í íþróttahúsi Kópavogsskóla á næsta vetri.

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins um tíma í Kópavogsskóla.

13

Skotíþróttafélag Kópavogs - Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram tímatafla félagsins fyrir kjallaranum í Digranesi.

Samþykkt

14

Glóð-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni félagsins, þar sem félagið óskar eftir 17 tímum í íþróttahúsi Kópavogsskóla, 2 klukkustundir í Kórnum og Digranesi auk þess að halda tímum sínum í Smáranum fyrir Ringó. Félagið leitar einnig eftir aðstöðu fyrir Jógahóp og Boccia.

Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk félagsins varðandi fjölda tíma í Kópavogsskóla, en félaginu er boðin sami tímafjöldi og á síðasta ári eða 12 tímar. Leitað verður eftir að finna lausan tíma í Kórnum ef eyður eru í skólatöflu. Félaginu er einnig boðið að nýta lausa tíma í Vestursal í Digranesi í samráði við forstöðumann.

15

Augnablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016.

Lögð fram beiðni félagsins, þar sem óskað er eftir 6 tímum á viku undir starfsemi barna- og unglingastarfs í körfuknattleik. Sótt er um aðstöðu í Þinga-, Kóra- eða Hvarfahverfi. Einnig sækir deildin um 2,5 tíma til keppni í Kórnum eða sambærilegu húsi fyrir meistaraflokk félagsins í körfuknattleik og tíma undir 3 æfingar í viku 1-2 tíma í senn.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum félagsins að öðru leiti en því að félagið fær til ráðstöfunar tvo tíma, annan í Kársnesi og hinn í Lindaskóla, vegna æfinga meistaraflokks. Íþróttaráð felur íþróttadeild að kanna möguleika varðandi keppnistíma fyrir deildina í þeim mannvirkjum sem uppfylla þau skilyrði sem á þarf að halda. Að auki felur Íþróttaráð íþróttadeild að finna æfingatíma fyrir barna og unglingastarf deildarinnar í Kórnum og upplýsa Íþróttaráð um þá niðurstöðu á næsta fundi ráðsins.$line$Við afgreiðslu þessa dagskrárliðar sat Sigurjón Jónsson hjá.

16

Íþróttafélag Stál-Úlfs-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016.

Lagðar fram beiðnir félagsins:$line$Knattspyrnudeild- sækir um 3 tíma á gervigrasi í Fagralundi (1,5 tíma mánudag og fimmtudag). Auk þessa sækir félagið um tíma fyrir Futsal 2 x 1,5 tíma í Digranesi.$line$Körfuknattleiksdeild- sækir alls um 4,5 tíma fyrir æfingar í Kársnes og Lindaskóla auk keppnistíma$line$Börn af erlendum uppruna - sækir alls um 3 tíma fyrir æfingar í Kársnes/Linda og Kórnum /Fífunni

Knattspyrnudeild- hægt er að verða við óskum deildarinnar um afgangstíma (eftir kl. 21) í Fagralundi að vetri og tíma á gervigrasi yfir sumartíma eins og verið hefur. Félaginu stendur til boða að leigja tíma í Kórnum og Fífunni eins og öllum öðrum. Skoða þarf möguleika á einum tíma fyrir Futsal í Digranesi á sunnudögum.$line$$line$Körfuknattleiksdeild - Félagið fær alls til ráðstöfunar 4 klst í íþróttahúsi Kársnes. Íþróttaráð felur íþróttadeild að kanna möguleika varðandi keppnistíma fyrir deildina í þeim mannvirkjum sem uppfylla þau skilyrði sem á þarf að halda. $line$$line$Börn af erlendum uppruna- Félagið fær alls til ráðstöfunar 4 klst í íþróttahúsi Kársnes.

17

Örninn Knattspyrnufélag - Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni félagsins, þar sem óskað er eftir því að nýta gervigrasið í Kórnum áfram sem heimavöll í Knattspyrnu. Jafnframt óskar félagið eftir 3 æfingar á sama velli yfir sumartíma,alls 4,5 tíma. Félagið óskar eftir aðstöðu til inniæfinga yfir vetrartíma og æfinga í Fagralundi.$line$

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins um afgangstíma (eftir kl. 21) í Fagralundi að vetri og tíma á gervigrasi yfir sumartíma eins og verið hefur. Félaginu stendur til boða að leigja tíma í Kórnum og Fífunni eins og öllum öðrum.

18

Ísbjörninn-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni félagsins,þar sem óskað er eftir því að halda sömu tímum og félagið hefur nýtt á síðasta vetri (14/15) Einnig óskar félagið eftir því að komast inn í Kórinn á vorönn 2016.

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins um afgangstíma (eftir kl. 21) í Fagralundi að vetri og tíma á gervigrasi yfir sumartíma eins og verið hefur. Félaginu stendur til boða að leigja tíma í Kórnum á vorönn eins og öllum öðrum.

19

Vatnaliljur-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016

Lögð fram beiðni félagsins, þar sem óskað er eftir því að halda sömu tímum og félagið hefur nýtt á tímabilinu (14/15).

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins.

20

Endurbætur á Strandblaksvöllum við Fagralund

Lögð fram svör Blakdeildar HK um umfang og starf á strandblaksvöllunum.

Íþróttaráð fjallaði um erindið og fagnar blómlegu starfi Blakdeildar HK. Tekið er undir sjónarmið um mikilvægi þess að gæta að viðhaldi þeirra mannvirkja sem notuð eru í starfi deildarinnar. Íþróttaráð vísar erindinu til Íþróttadeildar til skoðunar í tengslum við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

21

Viðurkenningar vegna góðs árangurs.

Umræður um útlit.

22

Starfshópur um framtíðarskipulag knattspyrnumála í Kópavogi

Almennar umræður um stöðu málsins og drög að fundaráætlun fyrir fyrstu 5 fundi nefndarinnar.

23

Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar.

Lagt fram

Ákvörðun Bæjarráðs Kópavogs þann 18.6 sl., um að fara í útboð á rekstri heilsuræktar í sundlaugum Kópavogs vekur undrun þar sem að málið hefur ekki verið lagt fyrir íþróttaráð en ráðið skal samkvæmt erindisbréfi um starf nefndarinnar vera ráðgefandi í málefnum sem koma að íþróttum og heilsueflingu innan bæjarins. Hvers vegna var ekki leitað til Íþróttaráðs að þessu sinni hvaða leið skuli fara varðandi rekstur og fyrirkomulag heilsuræktar í sundlaugum bæjarins?$line$Hér skal minnt á að bæjarbúar voru með fjölmenna undirskriftasöfnum vorið 2014 vegna fyrirhugaðra breytinga á rekstrinum þá. Einnig skal hér ítrekað mikilvægi þess að bæjarbúar eigi möguleika á góðum og ódýrum kosti til heilsueflingar í nærumhverfi til að stuðla að bættum lífsgæðum. $line$Samfylkingin óskar eftir faglegum vinnubrögðum hvað varðar þetta málefni sem skiptir sköpum fyrir bæjarbúa.$line$Fulltrúar Framsóknarflokksins og Vinstri grænna og félagshyggjufólks taka undir bókunina.$line$