Til baka í fundargerðir
Glóð-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016
Málsnúmer: 1505623
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 49. fundur
Lögð fram beiðni félagsins, þar sem félagið óskar eftir 17 tímum í íþróttahúsi Kópavogsskóla, 2 klukkustundir í Kórnum og Digranesi auk þess að halda tímum sínum í Smáranum fyrir Ringó. Félagið leitar einnig eftir aðstöðu fyrir Jógahóp og Boccia.
Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk félagsins varðandi fjölda tíma í Kópavogsskóla, en félaginu er boðin sami tímafjöldi og á síðasta ári eða 12 tímar. Leitað verður eftir að finna lausan tíma í Kórnum ef eyður eru í skólatöflu. Félaginu er einnig boðið að nýta lausa tíma í Vestursal í Digranesi í samráði við forstöðumann.