Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallargerði 31. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1505724

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1120. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lagt fram að nýju erindi Teiknistofunnar H.R. ehf. f.h. lóðarhafa, vegna fyrirhugaðra breytinga að Vallargerði 31. Tillagan hefur verið grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 28, 29, 32, 34 og Kópavogsbrautar 68 og er lagt fram skriflegt samþykki fyrrnefndra lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sverrir Óskarsson víkur af fundi undir afgreiðslu þessa máls. $line$$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2780. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. júní, lagt fram að nýju erindi Teiknistofunnar H.R. ehf. f.h. lóðarhafa, vegna fyrirhugaðra breytinga að Vallargerði 31. Tillagan hefur verið grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 28, 29, 32, 34 og Kópavogsbrautar 68 og er lagt fram skriflegt samþykki fyrrnefndra lóðarhafa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1262. fundur

Lagt fram að nýju erindi Teiknistofunnar H.R. ehf, f.h. lóðarhafa, vegna fyrirhugaðra breytinga að Vallargerði 31. Á fundi skipulagsnefndar 1.6.2014 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 28, 29, 32, 34 og 33 ásamt Kópavogsbraut 68.$line$$line$Lagt fram að nýju ásamt skriflegu samþykki fyrrnefndra lóðarhafa dags. 16.6.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson vék af fundi undir þessum lið.

04

Skipulagsnefnd - 1260. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Teiknistofunnar H.R. ehf, f.h. lóðarhafa, vegna fyrirhugaðra breytinga að Vallargerði 31. Í breytingunni felst að byggt verður við núverandi íbúðarhús; annars vegar á norðurhlið, 1,5 x 6m en hins vegar á suðurhlið um 3,5 x 4m. Húsið stækkar alls um 23m2 og nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,23 sbr. uppdráttum dags. 14.5.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 28, 29, 32, 34 og 33 ásamt Kópavogsbraut 68.$line$$line$Sverrir Óskarsson vék af fundi undir þessum lið.