Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 15062164

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1120. fundur

Samþykkt bæjarráðs: "Stofnaður verði starfshópur sem skipaður verður þremur fulltrúum meirihluta og tveimur úr minnihluta auk eins áheyrnafulltrúa úr minnihluta, ásamt bæjarritara og sviðstjóra umhverfisssviðs. $line$Hópnum er falið að halda áfram að greina og skoða stöðu húsnæðismála stjórnsýslu Kópavogsbæjar í samræmi við fyrirliggjandi gögn, auk þess að skoða fleiri kosti fyrir framtíðarstaðsetningu starfseminnar. Þar með talið er óbreytt staðsetning, hugsanlegur flutningur í annan hluta bæjarins, uppbygging á Fannborgarreit og á nærliggjandi svæði og aðrir kostir sem hópurinn kýs að skoða.$line$Hópnum er falið að kanna virði eigna í Fannborg með því að leita eftir hugmyndum frá þróunarfélögum og fjárfestum. $line$Þá skal hópurinn einnig láta fara fram m.a. rýnihópavinnu, hafa opna fundi, leita álits félagasamtaka og einstaklinga sem láta sig málefnið varða. Formaður hópsins er bæjarstjóri Kópavogs.$line$Hópurinn skal ljúka störfum í september 2015."$line$Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu og þar sem ágreiningur var í bæjarráði er hún til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum. $line$$line$Bæjarfulltrúi Birkir Jón Jónsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.

02

Bæjarráð - 2782. fundur

Frá bæjarstjóra, lagðar fram tvær tillögur um húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar sem frestað var á síðasta fundi, annars vegar tillaga að verkefnisáætlun frá Capacent um rýnivinnu með íbúum vegna húsnæðiskosta og hins vegar tillaga um að auglýst verði eftir áhuga fjárfesta á Fannborgarreit, hvað varðar hugsanlega nýtingu og verðhugmyndir. Jafnframt lögð fram svör við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar frá síðsta fundi, niðurstöður stjórnsýsluúttektar varðandi húsnæðismál stjórnsýslu Kópavogsbæjar frá 2012, auk erindis frá EIK fasteignafélagi ehf. um húsnæðiskost í Turninum.

Hlé var gert á fundi kl. 9.52. Fundi var fram haldið kl. 10.28.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 10.30. Fundi var fram haldið kl. 10.42.$line$$line$Neðangreindir bæjarráðsfulltrúar lögðu fram eftirfarandi tillögu:$line$"Stofnaður verði starfshópur sem skipaður verður þremur fulltrúum meirihluta og tveimur úr minnihluta auk eins áheyrnafulltrúa úr minnihluta, ásamt bæjarritara og sviðstjóra umhverfisssviðs. $line$Hópnum er falið að halda áfram að greina og skoða stöðu húsnæðismála stjórnsýslu Kópavogsbæjar í samræmi við fyrirliggjandi gögn, auk þess að skoða fleiri kosti fyrir framtíðarstaðsetningu starfseminnar. Þar með talið er óbreytt staðsetning, hugsanlegur flutningur í annan hluta bæjarins, uppbygging á Fannborgarreit og á nærliggjandi svæði og aðrir kostir sem hópurinn kýs að skoða.$line$Hópnum er falið að kanna virði eigna í Fannborg með því að leita eftir hugmyndum frá þróunarfélögum og fjárfestum. $line$Þá skal hópurinn einnig láta fara fram m.a. rýnihópavinnu, hafa opna fundi, leita álits félagasamtaka og einstaklinga sem láta sig málefnið varða. Formaður hópsins er bæjarstjóri Kópavogs.$line$Hópurinn skal ljúka störfum í september 2015.$line$$line$Theódóra Þorsteinsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu. Tillöguna samþykktu Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson og Ása Richardsdóttir, en Birkir Jón Jónsson greiddi atkvæði gegn tillögunni.$line$$line$Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég tel ekki rétt að auglýsa húsnæði Fannborgarsvæðisins til sölu á þessu stigi málsins. Mikilvægt er að bæjarstjórn móti stefnu til framtíðar um skipulag svæðisins og á grundvelli þeirrar vinnu verði næstu skref ákveðin. $line$Birkir Jón Jónsson"

03

Bæjarráð - 2781. fundur

Frá bæjarstjóra, tillaga um húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar, sem frestað var á fundi bæjarstjórnar þann 23. júní sl. Lögð fram tillaga Capacent að verkefnisáætlun vegna vinnu við skoðun ólíkra valkosta vegna húsnæðis.

Hjördís Ýr Johnson kom til fundar kl. 8.11$line$$line$Lagt fram.$line$$line$Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi spurningar sem óskað er svara við:$line$$line$"1. Hver er áætlaður kostnaður við flutning þjónustumiðstöðvar fatlaðs fólks að Fannborg 6 og hver verður framtíðarstaðsetning hennar? $line$2. Hvað er áætlað að margar íbúðir verði í Fannborg 2, 4 og 6 ef af flutningi verður? Hver er áætluð íbúasamsetning og kostnaður við að þjónusta þá íbúa?$line$3. Hvenær er áætlað að fyrstu íbúar flytjist í húsnæði Fannborgar 2, 4 og 6 og á hve löngum tíma má áætla að flutt verði í Fannborg 2, 4 og 6?$line$4. Hver er uppreiknaður kostnaður við endurbætur Fannborgar 2? Var sá kostnaður gjaldfærður eða á eftir að afskrifa hluta þess kostnaðar í bókhaldi bæjarins?$line$5. Hver er áætlaður kostnaður við endurbætur húsnæðis við Fannborg 2?$line$6. Hvað má áætla að húsfélags- og bílastæðagjöld verði í Norðurturninum, a) af þremur hæðum, b) af fjórum hæðum?$line$7. Hvað má áætla að fasteignagjöld, holræsagjald, vatnsskattur og lóðaleiga af þremur hæðum í Norðurturninum myndu skila á ársgrundvelli?$line$8. Er gert ráð fyrir mötuneyti fyrir starfsfólk í Norðurturninum?$line$9. Stendur til að halda íbúafundi þar sem hugmyndir um hugsanlegan flutning verða reifaðar?"$line$$line$$line$Fundarhlé kl. 9.32. Fundi fram haldið kl. 9.41.$line$Fundarhlé kl. 10.28. Fundi fram haldið kl. 10.35$line$Fundarhlé kl. 10.37. Fundi fram haldið kl. 10.40.$line$$line$Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur og Hjördísar Ý. Johnson:$line$"Tillaga er um að auglýst verði eftir áhuga fjárfesta á Fannborgarreitnum, hvað varðar hugsanlega nýtingu og verðhugmyndir." $line$Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.$line$Birkir Jón Jónsson bókar að hann óskaði eftir frestun málsins. $line$$line$Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur og Hjördísar Ý. Johnson$line$Við hörmum ákvörðun um frestun þar sem að tækifæri til að afla frekari upplýsinga sé að fara forgörðum. Slíkar u:pplýsingar hefðu getað gert umræðu bæjarfulltrúa á næsta bæjarstjórnarfundi auðveldari og verið nauðsynlegt veganesti fyrir framhaldið. $line$$line$Undirritaður hefur lagt fram spurningar í 9 liðum sem snerta hugsanlegan flutning bæjarskrifstofa Kópavogs. Þeim spurningum verður væntanlega svarað á næsta fundi bæjarráðs og þá rétt að ákvarða næstu skref málsins. Mikilvægt er að vandað verði til verka við úrlausn málsins ekki síst með mikla fjárhagslega hagsmuni bæjarins í huga. $line$Birkir Jón Jónsson$line$$line$ $line$Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Karenar E. Halldórsdóttur og Hjördísar Ý. Johnson:$line$"Tillaga er um að leitað verði eftir samráði við íbúa um framtíðarstaðsetningu á bæjarskrifstofum í samræmi við tillögu Capacent."$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

04

Bæjarráð - 2780. fundur

Frá bæjarstjóra, tillaga um húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar, sem frestað var á fundi bæjarstjórnar þann 23. júní sl.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna frekari greiningu á söluverðmæti Fannborgarreits.

05

Bæjarstjórn - 1119. fundur

Frá bæjarritara, dags. 16. júní, lagt fram minnisblað um húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar. Lagt er til að bæjarstjórn heimili bæjarstjóra að ganga til samninga um kaup á 3.489 fermetrum (þremur hæðum) í Nýja Norðurturninum við Smáralind með fyrirvara um að endanlegur kaupsamningur verði lagður fyrir bæjarráð til samþykkis. Þá heimilar bæjarstjórn að nýstofnaður skuldabréfaflokkur Kópavogsbæjar, KOP 15-1 sem er opinn verði stækkaður um allt að 1.500.000.000 kr. að nafnvirði til að fjármagna kaupin. Flokkurinn er til 25 ára, með 4 gjalddaga á ári. Þá er lagt til að bæjarstjórn heimili bæjarstjóra að hefja undirbúning sölu fasteigna og byggingarrétts í Fannborg.

Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi dagskrártillögu:$line$"Lagt er til að málinu Húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar verði frestað þangað til á næsta reglulega fundi bæjarstjórnar eftir sumarleyfi.$line$Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum gegn fimm. Atkvæði með tillögunni greiddu Ása Richardsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Sverrir Óskarsson og Margrét Friðriksdóttir. Atkvæði gegn tillögunni greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson og Guðmundur Geirdal.

06

Bæjarráð - 2779. fundur

Frá bæjarritara, dags. 16. júní, minnisblað um húsnæði stjórnsýslu Kópavogsbæjar.$line$Lagt til að bæjarstjórn heimili bæjarstjóra að ganga til samninga um kaup á 3.489 fermetrum í Nýja Norðurturninum við Smáralind. Þá heimilar bæjarstjórn að skuldabréfaflokkur Kópavogsbæjar, KOP 15-1 sem er opinn verði stækkaður um 1.500.000.000 kr. að nafnvirði. Flokkurinn er til 25 ára, með 4 gjalddaga á ári. $line$Tillagan verði samþykkt með fyrirvara um að endanlegur kaupsamningur verði lagður fyrir bæjarráð til samþykkis.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.