Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Augnablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2015/2016.

Málsnúmer: 15062265

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 52. fundur

Lagður fram tölvupóstur frá Aðastjórn HK dags. 28 semptember sl., þar sem greint er frá samskiptum HK og Augnabliks um stofnun/samstarf körfuknattleiksdeildar innan HK. Þá lýsir Aðalstjórn HK annmörkum þess að hægt sé að stofna körfuknattleiksdeild innan félagsins vegna aðstöðuleysis og óskar eftir því að Kópavogsbær upplýsi um hvort mögulegt sé að fá úthlutað fleiri tímum í íþróttahúsum bæjarins, austan Reykjanesbrautar, svo mögulegt sé að hefja undirbúningsvinnu fyrir stofnun körfuknattleiksdeildar hjá félaginu.

Almennar umræður. Vísað er til fyrri bókunar Íþróttaráðs varðandi mál þetta. Íþróttadeild falið að vinna málið áfram.

02

Íþróttaráð - 50. fundur

Lagðar fram upplýsingar frá HK og Breiðablik um lausa æfingatíma í Smáranum og Kórnum

Íþróttaráð samþykkir að úthluta Körfuknattleiksdeild Augnabliks keppnistímum í Kórnum á sunnudögum á komandi keppnistímabili. Nánari útfærsla tíma skal unnin af íþróttadeild.$line$Auk þess þá felur íþróttaráð íþróttafulltrúa að útvega Körfuknattleiksdeild Augnabliks æfingatímum fyrir barna og unglingastarf tvisvar í viku, þar af annan tímann á sunnudögum og hinn á virkum degi, samtals 4 tíma.$line$Sigurjón Jónsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

03

Íþróttaráð - 49. fundur

Lögð fram beiðni félagsins, þar sem óskað er eftir 6 tímum á viku undir starfsemi barna- og unglingastarfs í körfuknattleik. Sótt er um aðstöðu í Þinga-, Kóra- eða Hvarfahverfi. Einnig sækir deildin um 2,5 tíma til keppni í Kórnum eða sambærilegu húsi fyrir meistaraflokk félagsins í körfuknattleik og tíma undir 3 æfingar í viku 1-2 tíma í senn.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum félagsins að öðru leiti en því að félagið fær til ráðstöfunar tvo tíma, annan í Kársnesi og hinn í Lindaskóla, vegna æfinga meistaraflokks. Íþróttaráð felur íþróttadeild að kanna möguleika varðandi keppnistíma fyrir deildina í þeim mannvirkjum sem uppfylla þau skilyrði sem á þarf að halda. Að auki felur Íþróttaráð íþróttadeild að finna æfingatíma fyrir barna og unglingastarf deildarinnar í Kórnum og upplýsa Íþróttaráð um þá niðurstöðu á næsta fundi ráðsins.$line$Við afgreiðslu þessa dagskrárliðar sat Sigurjón Jónsson hjá.