Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar.

Málsnúmer: 15062343

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 49. fundur

Lagt fram

Ákvörðun Bæjarráðs Kópavogs þann 18.6 sl., um að fara í útboð á rekstri heilsuræktar í sundlaugum Kópavogs vekur undrun þar sem að málið hefur ekki verið lagt fyrir íþróttaráð en ráðið skal samkvæmt erindisbréfi um starf nefndarinnar vera ráðgefandi í málefnum sem koma að íþróttum og heilsueflingu innan bæjarins. Hvers vegna var ekki leitað til Íþróttaráðs að þessu sinni hvaða leið skuli fara varðandi rekstur og fyrirkomulag heilsuræktar í sundlaugum bæjarins?$line$Hér skal minnt á að bæjarbúar voru með fjölmenna undirskriftasöfnum vorið 2014 vegna fyrirhugaðra breytinga á rekstrinum þá. Einnig skal hér ítrekað mikilvægi þess að bæjarbúar eigi möguleika á góðum og ódýrum kosti til heilsueflingar í nærumhverfi til að stuðla að bættum lífsgæðum. $line$Samfylkingin óskar eftir faglegum vinnubrögðum hvað varðar þetta málefni sem skiptir sköpum fyrir bæjarbúa.$line$Fulltrúar Framsóknarflokksins og Vinstri grænna og félagshyggjufólks taka undir bókunina.$line$