Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hamraborg 3. Gistiheimili. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1507047

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1139. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Studio apartments þar sem óskað er eftir að breyta hluta Hamraborgar 3 í gistiheimiili sbr. uppdrætti dags. 12.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar 31.3.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 1 og 5. Kynningu lauk 9.5.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 7 samhljóða atkvæðum. Ólafur Þór Gunnarsson, Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir greiddu ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2824. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 31. maí, lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Studio apartments þar sem óskað er eftir að breyta hluta Hamraborgar 3 í gistiheimiili sbr. uppdrætti dags. 12.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar 31.3.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 1 og 5. Kynningu lauk 9.5.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1277. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Studio apartments þar sem óskað er eftir að breyta hluta Hamraborgar 3 í gistiheimiili sbr. uppdrætti dags. 12.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar 31.3.2016 var samþykkt með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 1 og 5. Kynningu lauk 9.5.2016. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Hlé var gert á fundi kl. 17:47.$line$Fundi var framhaldið kl. 17:50.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Andrés Pétursson, Jón Finnbogason, Sigríður Kristjánsdóttir og Guðmundur Gísli Geirdal samþykktu tillöguna.$line$$line$Arnþór Sigurðsson og Kristinn Dagur Gissurarson voru andvígur því að samþykkja tillöguna.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir tók undir höfnun Arnþórs Sigurðssonar og Kristins Dags Gissurarsonar.$line$$line$Bókun frá Kristni Degi Gissurarsyni:$line$"Harma fordæmisgefandi ákvörðun meirihluta skipulagsnefndar að heimila gistirekstur á jarðhæð að Hamraborg 3. Skipulagsnefnd þ.e. meirihlutinn opnar á að flæði gistirýmareksturs á jarðhæðum í Hamraborg sem getur leitt til einhæfni og laskað áætlanir og áform um fjölbreytni á Hamraborgarsvæðinu."$line$$line$Bókun frá Theódóru S. Þorsteinsdóttur:$line$"Eins og skipulagið er í dag eru leiðbeiningar fyrir Hamraborg."

04

Skipulagsnefnd - 1274. fundur

Lagt fram að nýju erindi Studio apartments þar sem óskað er eftir að breyta hluta Hamraborgar 3 í gistiheimiili sbr. uppdrætti dags. 12.1.2016. Á fundi skipulagsnefndar var málinu frestað.

Hlé var gert á fundi kl. 17:05$line$Fundi var framhaldið kl. 17:09$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson lagði til að framlagðri tillögu yrði hafnað.$line$Kristinn Dagur Gissurarson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir voru samþykk höfnun.$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Geirdal og Sigríður Kristjánsdóttir voru andvíg höfnun.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 1 og 5.$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Geirdal og Sigríður Kristjánsdóttir voru samþykk því að grenndarkynna tillöguna.$line$Kristinn Dagur Gissurarson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir voru andvíg því að grenndarkynna tillöguna.$line$$line$Bókun frá Kristni Degi Gissurarsyni:$line$Fulltrúi Framsóknarflokksins harmar ósamkvæmni í störfum skipulagsnefndar í þessu máli og lýsir hryggð yfir stefnuleysi meirihlutans.

05

Skipulagsnefnd - 1273. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Studio apartments, dags. 13.1.2015, vegna synjunar skipulagsnefndar á erindi félagsins um að breyta veitingastað að Hamraborg 3 í gistiheimili. $line$$line$Lagður fram uppdráttur Alark arkitekta dags. 12.1.2016 þar sem fram koma fyrrnefndar breytingar á Hamraborg 3. Í breytingunni felst að í norðurhluta rýmisins verða tvö gistirými. Í suðurhluta rýmisins verður verslunarrými sem snýr út að Hamraborg.

Frestað.

06

Skipulagsnefnd - 1272. fundur

Frá bæjarráði:$line$Lagt fram erindi Studio apartments, dags. 13.1.2015, vegna synjunar skipulagsnefndar á erindi félagsins um að breyta veitingastað að Hamraborg 3 í gistiheimili. $line$$line$Lagður fram uppdráttur Alark arkitekta dags. 12.1.2016 þar sem fram koma fyrrnefndar breytingar á Hamraborg 3. Í breytingunni felst að í norðurhluta rýmisins verða tvö gistirými. Í suðurhluta rýmisins verður verslunarrými sem snýr út að Hamraborg.

Skipulagsnefnd vísaði erindi til byggingarfulltrúa.

07

Bæjarráð - 2805. fundur

Frá Studio apartments, dags. 13. janúar, lagt fram bréf í tilefni af synjun skipulagsnefndar á erindi félagsins um að breyta veitingastað að Hamraborg 3 í gistiheimili, þar sem m.a. er óskað eftir rökstuðningi á synjun umsóknar.

Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til afgreiðslu.

08

Bæjarstjórn - 1123. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, lagt fram að nýju erindi Alark arkitekta f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að breyta veitingahúsi á 1. hæð í gistiheimili með þremur sjálfstæðum gistieiningum. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 14.9.2015. Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri umsókn um gistiheimili í Hamraborg 3 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.

09

Skipulagsnefnd - 1265. fundur

Lagt fram að nýju erindi Alark arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 19.6.2015. Í erindi er óskað eftir að breyta veitingahúsi á 1. hæð í gistiheimili með þremur sjálfstæðum gistieiningum sbr. uppdrætti dags. 10.7.2015. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var málinu frestað.$line$$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 14.9.2015.

Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri umsókn um gistiheimili í Hamraborg 3. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

10

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Alark arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 19.6.2015. Í erindi er óskað eftir að breyta veitingahúsi á 1. hæð í gistiheimili með þremur sjálfstæðum gistieiningum sbr. uppdrætti dags. 10.7.2015.

Frestað.