Skipulagsnefnd - 1273. fundur
í bæjarstjórnarsal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Sigríður Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
- Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Andrés Pétursson - varafulltrúi
- Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri
- Þóra Jóhannesdóttir Kjarval - starfsmaður nefndar
- Guðrún Edda Finnbogadóttir - lögfræðingur
Ritari
- Þóra Kjarval
Dagskrá fundar
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Studio apartments, dags. 13.1.2015, vegna synjunar skipulagsnefndar á erindi félagsins um að breyta veitingastað að Hamraborg 3 í gistiheimili. $line$$line$Lagður fram uppdráttur Alark arkitekta dags. 12.1.2016 þar sem fram koma fyrrnefndar breytingar á Hamraborg 3. Í breytingunni felst að í norðurhluta rýmisins verða tvö gistirými. Í suðurhluta rýmisins verður verslunarrými sem snýr út að Hamraborg.
Frestað.
Frá byggingarfulltrúa:$line$Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga VA Arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 4.11.2015 þar sem óskað er eftir breytingum að Nýbýlavegi 78. Í breytingunni felst að núverandi hús á lóðinni, byggt árið 1961, verði rifið. Þess í stað verði reist íbúðarhús með 6 íbúðum á tveimur hæðum og kjallara. Á lóð verða 6 bílastæði ásamt bílgeymslum fyrir tvo bíla sbr. teikningum dags. 4.11.2015. Á fundi skipulagsnefndar 30.11.2015 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 56, 58, 60, 62, 64, 66, 68, 70, 72, 74, 76 og 80; Túnbrekku 2 og 4; Lundarbrekku 2 og 4. Kynningu lauk 18.1.2016. Athugasemd barst frá Halldóri Ingvarssyni og Hjördísi Ólafsdóttur, Nýbýlavegi 68, dags. 18.1.2016; frá Lundabrekku 2, 13 undirskriftir, dags. 18.11.2016; frá Nýbýlavegi 72, 4 undirskriftir, dags. 18.1.2016; frá Nýbýlavegi 76, 1 undirskrift, dags. 18.1.2016; frá Nýbýlavegi 80, 3 undirskriftir, dags. 18.1.2016; frá Túnbrekku 2, 3 undirskriftir, dags. 18.1.2016; frá Túnbrekku 4, 6 undirskriftir, dags. 18.1.2016.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga VA arkitekta fh. lóðarhafa dags. 10. febrúar 2016 þar sem dregið hefur verið úr byggingarmagni á lóð og fyrirkomulagi bílastæða breytt.$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15. febrúar 2016.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu dags. 4.11.2015 með áorðnum breytingum ásamt umsögn dags. 10.2.2016 með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Í upphafi árs 2015 fór fram grenndarkynning á íbúðarhúsnæði við Kársnesbraut 7. Kynntar voru hugmyndir lóðarhafa um tvö íbúðarhús með 9 íbúðum alls. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu og var umsókn lóðarhafa hafnað í skipulagsnefnd 4. maí 2015. Í kjölfar höfnunar voru haldnir samráðsfundir með næstu nágrönnum, lóðarhafa Kársnesbrautar 7 og hans hönnuði. Á fundunum var farið yfir breyttar tillögur lóðarhafa þar sem komið var til móts við athugasemdir sem bárust á kynningartíma og þær athugasemdir sem komu fram á samráðsfundum.$line$$line$Lagðar fram tillögur THG arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 26.11.2015 að uppbyggingu að Kársnesbraut 7. Settar eru fram þrjár tillögur (Tillögur A, B og C) með 1-2 húsum á lóðinni, allar tillögur gera ráð fyrir 6 íbúðum á lóðinni. Tillögur gera ráð fyrir nýtingarhlutfalli upp á 0,38 - 0,46 sbr. uppdráttum dags. 26.11.2015. $line$$line$Í Tillögu A er gert ráð fyrir tveimur húsum með þremur íbúðum hvort og liggja húsin samsíða Kársnesbrautinni. Bílastæði eru milli húsanna tveggja og á suðurhluta lóðar. Heildarbyggingarmagn á lóð er um 702 m2 og nýtingarhlutfall er 0,40.$line$$line$Í Tillögu B er gert ráð fyrir einu húsi með sex íbúðum, húsið er á norðurhluta lóðar, samsíða Kársnesbrautinni. Bílastæði eru á suðurhluta lóðar.$line$Heildarbyggingarmagn á lóð er um 660 m2 og nýtingarhlutfall er 0,38.$line$$line$Í Tillögu C er gert ráð fyrir tveimur húsum með þremur íbúðum hvort. Syðra húsið er samsíða Ásbrautinni en nyrðra húsið er samsíða Kársnesbrautinni. Bílastæði eru á milli húsanna tveggja og undir syðra húsinu. Heildarbyggingarmagn á lóð er um 798 m2 og nýtingarhlutfall er 0,46.$line$$line$Í öllum tillögum verði gert ráð fyrir hljóðvegg á norðurhluta lóðarinnar.$line$$line$Greint frá samráðsfundum sem haldnir voru 26.1.2016 og 11.2.2016.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna Tillögu C fyrir lóðarhöfum Ásbrautar 2, 2a, 3, 5, 7, 7a, 9, 11 og 13; Hraunbrautar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 12, 14 og 16; Kársnesbrautar 9, 11, 13, 15, 17, 19, 21a-d, 23 og 25; Marbakkabrautar 1, 3, 3a, 5 og 7.
Lagt fram erindi Gláma-Kím arkitekta, dags. 26.1.2016, f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Kópavogsbakka 2. Í breytingunni felst að 72 m2 ónýtt sökkulrými í kjallara verður tekið í notkun. Við breytinguna verður heildarstærð hússins 565,5 m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,63 í 0,73 sbr. erindi dags. 26.1.2016.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Kópavogsbakka 1, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 13 og 15.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem tók gildi 14. júní 2015 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 2: Vaxtamörk byggðar, dags. 3. janúar 2016.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem tók gildi 14. júní 2015 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 3: Vatnsvernd, dags. 3. janúar 2016
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem tók gildi 14. júní 2015 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal, Kristinn Dagur Gissurarson og Andrés Pétursson samþykktu tillöguna.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Ása Richardsdóttir samþykktu ekki tillöguna.$line$Sigríður Kristjánsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$ $line$Bókun frá Ásu Richardsdóttur:$line$Ég leggst gegn því að opið svæði í Kópavogsdal, sunnan Dalvegar verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði í breyttu aðalskipulagi Kópavogs.$line$Opin svæði eiga undir högg að sækja í Kópavogi og vil ég varðveita þetta opna svæði, þó Kópavogsgöng verði ekki lögð. $line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir tók undir bókun Ásu Richardsdóttur.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 5: Sveitarfélagamörk í þéttbýli og upplandi Kópavogs, dags. 3. janúar 2016.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem tók gildi 14. júní 2015 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 6: Miðhverfi skilgreining, dags. 3. janúar 2016.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 7: Auðbrekka, dags. 3. janúar 2016.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 8 Smárinn vestan Reykjanesbrautar dags. 3. janúar 2016.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Guðmundur Geirdal og Andrés Pétursson samþykktu tillöguna.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir samþykkti ekki tillöguna.$line$Kristinn Dagur Gissurarson og Ása Richardsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:$line$Ég get fallist á mikilvægi þess að íbúðareiningar minnki, en í stað þess að fjölga íbúðum tel ég að auka eigi opin svæði. Tel óásættanlegt að fjölga íbúðum um 140. Það mun auka umferð til muna.$line$$line$Bókun frá Sverri Óskarssyni, Sigríði Kristjánsdóttur, Guðmundi Geirdal og Andrési Péturssyni:$line$Ekki er verið að auka byggingarmagn heldur fjölga minni íbúðum í samræmi við þverpólitískar áherslur Húsnæðisskýrslu Kópavogs.$line$$line$Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:$line$Gott er að leggja til aukningu á litlum íbúðum og fækka stórum en það er hægt að gera án þess að fjölga íbúðum. Hér er verið að fjölga íbúðum um 140.
Lagður fram úrskurður frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála frá 21. janúar 2016 vegna kæru á ákvörðum bæjarstjórnar Kópavogs frá 28. maí 2013 vegna breytingar á deiliskipulagi Vatnsendahlíðar - Þing 2, 3 og 4.
Lagt fram.
Lagður fram úrskurður frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála frá 29. janúar 2016 vegna kæru á ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs frá 10. september 2013 vegna breytingar á deiliskipulagi Kópavogsbakka 2 og 4.
Lagt fram.
Tillaga frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur og Ásu Richardsdóttur:$line$Skipulagsnefnd Kópavogs samþykkir að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Kópavogsdal en núgildandi skipulag er frá 1990.$line$$line$Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að tryggja fjármagn og mannafla til þessarar vinnu.$line$$line$Skipulagsnefnd Kópavogs vill leggja áherslu á fjölbreytta aðstöðu til útivistar fyrir almenning og græn svæði í Kópavogsdal.$line$$line$Vinna þarf framtíðarsýn um Kópavogsdal, sem er í þágu allra bæjarbúa.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir, Sverrir Óskarsson og Sigríður Kristjánsdóttir samþykktu tillöguna.$line$Andrés Pétursson var samþykkti ekki tillöguna.$line$Kristinn Dagur Gissurarson og Guðmundur Geirdal sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Tillaga frá Sverri Óskarssyni:$line$Lagt er til að fyrri drög að deiliskipulagi Smiðjuvegar 44-66 verði lögð fram á næsta fundi skipulagsnefndar.
Fyrirspurn frá Guðmundi Geirdal:$line$Óskað er eftir að skipulags- og byggingardeild fari yfir hæðartölur vegna áhrifa af hækkandi stöðu sjávar.
Fyrirspurn frá Sigríði Kristjánsdóttur:$line$Lagt er til að skoðað verði hvernig hægt sé að helga Fossvoginn til útivistanotkunar fyrir sjósund og siglingar.
Bókun frá Sverri Óskarssyni:$line$Frábært væri að fá stökkbretti.