Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breiðablik knattspyrnudeild-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kóp.2015-2016

Málsnúmer: 1507490

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 54. fundur

Greint var frá því að bæjarráð samþykkti fyrr í dag nýja gjaldskrá knatthúsa í Kópavogi.

Íþróttaráð fagnar ákvörðun Bæjarráðs um breytingu á gjaldskrá fyrir knatthúsin í Kópavogi en íþróttaráð beitti sér fyrir slíkri hækkun strax í ágúst á þessu ári. Samkvæmt því sem fram kom á fundi íþróttaráðs ætti breytingin að auka svigrúm til úthlutunar á tímum til knattspyrnufélaganna um næstu áramót um 3 - 6 tíma. Íþróttaráð felur íþróttadeild að vinna með knattspyrnudeildunum um útfærslu á nýtingu þeirra tíma sem hér um ræðir.

02

Íþróttaráð - 52. fundur

Á 50. fundi Íþróttaráðs sem fór fram þann 20. ágúst sl. bókaði íþróttaráð með eftirfarandi hætti:$line$Í ljósi fjölgunar iðkenda í knattspyrnu hjá félögunum í Kópavogi og samhliða því aukinnar eftirspurnar eftir tímum í knatthúsunum tveimur þá felur íþróttaráð íþróttafulltrúa að skoða hvort svigrúm sé til að endurskoða gjaldskrá um útleigutíma í knatthúsunum með það að markmiði að hækka verð á hvern útleigutíma. Þannig verður hugsanlega til svigrúm til þess að ná fram sömu leigutekjum en á færri útleigutíma. Ætti það að gefa svigrúm til þess að fjölga tímum til úthlutunar til knattspyrnufélaganna, þá sérstaklega í barna og unglingastarfi, þar sem vöxtur í fjölda iðenda hefur verið hvað mestur.$line$Á 2786 fundi bæjarráðs sem fór fram þann 3. september sl., fjallaði bæjarráð um erindið undir fyrirsögninni "Athugun á svigrúmi til hækkunar gjaldskrár í Knatthúsum bæjarins". Afgreiðsla Bæjarráðs var að þannig að, Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.$line$Íþróttaráð minnir á sína fyrri bókun og leggur áherslu á framgang málsins fyrir næstu áramót.

03

Íþróttaráð - 50. fundur

Lagt fram erindi knattspyrnudeildar Breiðabliks dags. 26. maí sl., með umsókn um æfingatíma veturinn 2015-16.$line$Vegna mistaka fórst fyrir að leggja erindið fram og taka aftstöðu til þess, við úthlutun á æfingatímum í íþróttamannvirkjum á fundi íþróttaráðs þann 25. júní sl.$line$Jafnframt lagður fram tölvupóstur frá framkvæmdastjóra Knattspyrnudeildar Breiðabliks dags. 22. júlí, með viðbótaróskum um æfingatíma.

Íþróttaráð biðst velvirðingar á því að upphaflegt erindi var ekki lagt fyrir á réttum tíma. $line$Deildinni er úthlutað sömu æfingatímum í Fífunni og í Fagralundi og síðast liðinn vetur undir starfsemi sína.$line$Íþróttaráð getur ekki tryggt deildinni tvo gervigrasvelli í fullri stærð sem eru nothæfir allan veturinn á meðan gervigrasvöllur í Fagralundi er ekki upphitaður. Íþróttaráð getur ekki orðið við beiðni deildarinar um að fá afnot að Fífunni til kl. 22:00 virka daga vikunnar þar sem deildinni eru settar ákveðnar kvaðir við að afla tekna af útleigu hallarinnar. $line$Íþróttaráð úthlutar deildinni 4 tímum á sunnudögum í Digranesi og 6 í Kársnesi á laugardögum fyrir iðkendur 8 ára og yngri.$line$Íþróttaráð vísar ósk um aðstöðu við Smárann eða í nágrenni hans fyrir styrktarþjálfun fyrir iðkendur 13 ára og eldri til gerðar fjárhagsáætlunar en bendir jafnframt á að nú þegar hafi Breiðablik styrktaraðstöðu til afnota í stúku Kópavogsvallar fyrir starfsemi sína.$line$Að lokum vísar Íþróttaráð umsókn er fram kemur í tölvupósti frá 22. júlí frá, enda viðbótaróskir við fyrra erindi og of seint fram komnar samanber reglur um úthlutun æfingatíma er samþykktar vori í maí sl.$line$$line$Bókun íþróttaráðs:$line$Í ljósi fjölgunar iðkenda í knattspyrnu hjá félögunum í Kópavogi og samhliða því aukinnar eftirspurnar eftir tímum í knatthúsunum tveimur þá felur íþróttaráð íþróttafulltrúa að skoða hvort svigrúm sé til að endurskoða gjaldskrá um útleigutíma í knatthúsunum með það að markmiði að hækka verð á hvern útleigutíma. Þannig verður hugsanlega til svigrúm til þess að ná fram sömu leigutekjum en á færri útleigutíma. Ætti það að gefa svigrúm til þess að fjölga tímum til úthlutunar til knattspyrnufélaganna, þá sérstaklega í barna og unglingastarfi, þar sem vöxtur í fjölda iðenda hefur verið hvað mestur.$line$Þá þarf auk þess að meta framtíðarþörf knattspyrnufélaganna hvað aðstöðu varðar í vinnu starfshóps um framtíðarskipan knattspyrnu í Kópavogi sem hefur nú þegar hafið störf.