Fyrirspurn vegna kostnaðar barna og fjölskyldna þeirra vegna skólagöngu. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni.
Málsnúmer: 15084085
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2789. fundur
Frá sviðsstjóra og rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 22. september, lagt fram svar við fyrirspurn úr bæjarráði vegna kostnaðar barna og fjölskyldna þeirra vegna skólagöngu.
Lagt fram.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson bókar þakkir fyrir svörin.
02
Bæjarráð - 2787. fundur
Margrét Júlía Rafnsdóttir ítrekar fyrirspurn Ólafs Þórs Gunnarssonar frá 27. ágúst sl.
03
Bæjarráð - 2785. fundur
Ólafu Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirpurn:$line$"Fyrirspurn vegna kostnaðar barna og fjölskyldna þeirra vegna skólagöngu.$line$$line$Hver er áætlaður kostnaður hvers barns (greint eftir árgöngum) í grunnskóla vegna:$line$a) Ritfanga, bóka, stílabóka og annars búnaðar sem fram kemur á innkaupalistum hvers skóla?$line$b) Hver er kostnaður hvers barns vegna skólamáltíða á ári skv. gjaldskrá?$line$c) Hver er meðalkostnaður þeirra barna sem nota dægradvöl yfir veturinn?$line$d) Hver er kostnaður vegna ferðalaga og viðburða tengdum skólanum yfir veturinn?$line$$line$Hefur menntasvið markað sér einhverja stefnu eða sett viðmið um hvað sé ásættanleg gjaldtaka í skólum?$line$$line$$line$Greinargerð:$line$Á hverju hausti vaknar umræða í samfélaginu um hver sé kostnaður fjölskyldna vegna skólagöngu barna. Miðað við þá lista sem grunnskólarnir hafa gefið út getur kostnaður hjá barnmörgum fjölskyldum hlaupið á tugum þúsunda að hausti og losað hundruð þúsunda yfir veturinn. Nú í haust hefur m.a. verið bent á af Barnaheill að jafnrétti til náms sé ógnað vegna vaxandi kostnaðar sem fellur á foreldra. Það er afar mikilvægt að menntasvið geri sér grein fyrir og hafi yfirlit yfir hver kostnaðurinn er, greint eftir árgöngum og skólum. Kópavogsbær ætti að marka sér þá stefnu að tryggja jafnrétti barna til náms. Aðeins með því að hafa fyrirliggjandi upplýsingar um hver heildarkostnaðurinn er getur bærinn áætlað hvernig og hvenær skólaganga barna verður í raun endurgjaldslaus.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson"