Bæjarráð - 2787. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - varafulltrúi
- Ása Richardsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá bæjarlögmanni, dags. 8. september, lögð fram beiðni til veðsetningar lóðarinnar Álalind 2-8 f.h. lóðarhafa GG verks ehf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til veðsetningar lóðarinnar Álalind 2-8.
Frá Neytendasamtökunum, dags. 31. ágúst 2015, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir styrkframlagi til samtakanna í þágu neytendastarfa vegna ársins 2016.
Bæjarráð hafnar erindinu.
Frá Tennisfélagi Kópavogs og Tennishöllinni, dags. 8. september, lagt fram erindi vegna stækkun Tennishallarinnar þar sem óskað er eftir að framlagðar tillögur að nýju útliti hennar fái afgreiðslu hjá skipulagsnefnd.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar til afgreiðslu.
162. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 5. liðum.
Lagt fram.
6. eigendafundur Sorpu í 6. liðum.
Lagt fram.
10. eigendafundur Strætó í 4. liðum.
Lagt fram.
203. fundur heilbrigðisnefndar í 79. liðum.
Lagt fram.
346. fundur stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í 6. liðum.
Lagt fram.
Fyrirspurn frá Birki Jóni Jónssyni um svokallaðar körfurólur á leikvöllum og skólalóðum í tilefni af fréttaflutningi um slysahættu sem af slíkum rólum getur stafað.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs til umsagnar, en upplýst var á fundinum að þrjár rólur voru í Kópavogi en þær hafa allar verið teknar niður.
Frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur, tillaga um gjaldfrjálsan grunnskóla í Kópavogi sem felur í sér að námsgögn og skólamáltíðir verði börnum að kostnaðarlausu.
Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar til umsagnar.
11
Fyrirspurn vegna kostnaðar barna og fjölskyldna þeirra vegna skólagöngu. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni.
Margrét Júlía Rafnsdóttir ítrekar fyrirspurn Ólafs Þórs Gunnarssonar frá 27. ágúst sl.