Móttaka flóttafólks
Málsnúmer: 1509109
Ferill máls
01
Velferðarráð - 5. fundur
Lokaskýrsla eftir fyrra ár móttökuverkefnis
Velferðarráð þakkaði fyrir greinargóða og faglega samantekt.
02
Félagsmálaráð - 1416. fundur
Margrét Arngrímsdóttir verkefnisstjóri greindi frá stöðu mála.
Félagsmálaráð þakkaði fyrir samantektina og óskar fjölskyldunum og starfsfólki áframhaldandi velfarnaðar.
03
Félagsmálaráð - 1406. fundur
Anna Klara Georgsdóttir verkefnastjóri velferðarsviðs og Björg Baldursdóttir verkefnastjóri menntasviðs hafa verið skipaðar í bakhóp velferðarráðuneytisins vegna móttöku flóttafólks árið 2016-2017.
Lagt fram til upplýsingar.
04
Bæjarráð - 2805. fundur
Frá Velferðarráðuneyti, dags. 12. janúar, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir tilnefningu tveggja fulltrúa af hálfu Kópavogsbæjar í samráðshóp vegna móttöku flóttafólks.
Bæjarráð tilnefnir Önnu Klöru Georgsdóttur og Björgu Baldursdóttur í samráðshóp vegna móttöku flóttafólks. $line$$line$Verkefnastjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
05
Skólanefnd - 96. fundur
Kynning á stöðu mála.
Björg Baldursdóttir, verkefnastjóri kom og gerði grein fyrir undirbúningi við mótttöku flóttamanna til Kópavogs.
06
Leikskólanefnd - 65. fundur
Sviðsstjóri menntasviðs upplýsti fundarmenn um undirbúning sviðsins fyrir komu flóttafólks til Kópavogs. Leikskólanefnd fagnar góðum undirbúningi menntasviðs vegna komu þess.
07
Skólanefnd - 94. fundur
Anna Birna Snæbjörnsdóttir sagði frá stöðu mála.
08
Félagsmálaráð - 1400. fundur
Lagt fram til umræðu og upplýsingar.
Farið var yfir stöðu mála og framgang verkefnisins.
09
Bæjarráð - 2793. fundur
Frá velferðarráðuneyti, dags. 13. október, lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðherra varðandi móttöku Kópavogsbæjar á flóttafólki.
Lagt fram.
10
Félagsmálaráð - 1399. fundur
Sviðsstjóri og verkefnastjóri gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi undirbúning móttöku flóttafólks í bænum.
11
Bæjarráð - 2792. fundur
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. október, lagt fram bréf til allra sveitarfélaga, dags. 6. október, um móttöku á flóttamönnum þar sem sveitarfélögum er boðið að tilnefna fulltrúa í samráðshóp um málið.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til afgreiðslu.
12
Félagsmálaráð - 1398. fundur
Farið var yfir stöðu mála varðandi undirbúning móttöku kvótaflóttafólks og hælisleitenda.
13
Félagsmálaráð - 1397. fundur
Rætt var um stöðu undirbúnings móttöku flóttafólks í bænum.$line$Greint var frá fundi sem haldinn verður á morgun með fulltrúum Hafnarfjarðar um samstarf um móttöku og mun fulltrúi félagsmálaráðs mæta á þann fund.
14
Félagsmálaráð - 1396. fundur
Félagsmálaráð Kópavogs lýsir yfir ánægju sinni með samþykkt stjórnar SSH í dag, þar sem ákveðið er að sveitarfélögin á Höfuðborgarsvæðinu standi sameiginlega að undirbúningi móttöku flóttafólks.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
15
Bæjarráð - 2786. fundur
Frá velferðarráðuneytinu, dags. 1. september, erindi til sveitarfélaga um móttöku flóttafólks.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við velferðarráðuneyti um erindið. Bæjarstjóri upplýsti að málið verður á dagskrá næsta stjórnarfundar SSH.